Fimmta umferðin á Heimsmeistaramóti öldungasveita í Durres í Albaníu fór fram í dag, gangurinn í 50+ var ekkert sérstakur en upp úr stóð einstaklega góður sigur Guðmundar Gíslasonar á norsku skákgoðsögninni Simen Agdestein. Íslenka liðið í 65+ flokkunum vann sína viðureign og er aðeins hálfri viðureign frá efsta liði (1 matchpoint). Frídagur er á morgun en haldið er áfram á laugardaginn.
65+ flokkur
Jón L. hvíldi í dag en félagið mætti norskri FM sveit.
Helgi hafði hvítt og var að vinna með meira rými mest alla skákin eftir að upp kom London-system. Helgi náði ekki að gera sér mat úr því og jafntefli var samið eftir einföldun á taflinu í endatafli.
Margeir kom sterkur úr hvíldinni og vann góðan sigur með svörtu. Margeir tryggði sér biskupaparið og gott endatafl og h-peð hans varð hættulegast maðurinn á borðinu og tryggði sigurinn.
FIDE meistararnir Þorsteinn og Joran Jansson skildu jafnir í rólegri skák.
Áskell virðist í fínasta formi og vann ótrúlega þægilegan sigur án mikillar fyrirhafnar með svörtu.
Úrslit:
Þægilegur 3-1 sigur og íslenska liðið því með 8 stig eftir fimm umferðir fyrir frídaginn.

Íslenska liðið er í öðru sæti á eftir því franska sem er efst með 9. Ísland hefur fengið flesta vinninga það sem af er sem eru fyrstu oddastig á eftir viðureignarstigum. Næst á dagskrá er franska liðið sem er í efsta sæti og sigur þar myndi koma íslenska liðinu í toppsætið!
50+ flokkur
Þröstur hvíldi hjá íslenska liðinu í 50+ sem mætti þéttri ungverskri sveit.

Á efsta borði tapaði Jóhann gegn stórmeistaranum Attila Czebe. Jóhann hafði fínt miðtafl og eftir smá flækjur virtist endataflið eiga að vera jafntefli. Hvíta kóngsstaðan var þó aðeins verri og svörtu peðin á e- og f- línunni urðu allt í einu stórhættuleg á meðan hvítur var styttra á veg kominn.
Á öðru borði tefldi Karl með svörtu og traust tiltölulega stutt jafntefli niðurstaðan.
Á þriðja lenti Ágúst Sindri í að kóngstaðan opnaðist eftir góða skiptamunsfórn GM Varga, taflið of erfitt í kjölfarið.
Rúnari náði góðri tafljöfnun og uppskiptum gegn stórmeistara og stutt jafntefli niðurstaðan.
Lokaniðurstöður 1-3 tap, hvítu mennirnir klikkuðu í dag.



Vestfirðingarnir fengu norska sveit og alvöru verkefni hjá Guðmundi á efsta borði sem hann leysti með stakri prýði. Sá norski þandi sig á kóngsvæng en Guðmundur tók rými á miðborðinu. Læsing peðanna var hvítum í hag, ekki vottur af kóngssókn á h-línunni og þegar leið á taflið voru peð svarts á f5 og g4 orðin góð skotmörk. Satt best að segja sanngjarn sigur hjá Guðmundi og hann aldrei með verra tafl!
Magnús Pálmi lenti í vandræðum með rými með svörtu gegn Catalan. Peðsfórn í miðtaflinu blíðkaði ekki goðin og fín skák hjá Atla hinum græna.
Halldór missti tökin á hvítu stöðunni gegn Benkö. Þegar slíkt gerist springur svarta staðan oft út og hvíti kóngurinn í þokkabót stóð verr.
Guðmundarnir redduðu málunum en Guðmundur Halldórsson vann á fjórða borði. Í fínna stöðu á svart ákvað Norðmaðurinn með hvítt að fara í taktíska aðgerð á h7 en yfirsást greinilega taktísk svör Guðmundar sem hann hafði á reiðum höndum.
Fínustu úrslit hjá Vestfirðingum gegn stigahærri sveit.

Vestfirðingar hafa því 7 stig en Ísland 6 stig.

Bandaríkjamenn og Ítalir í efstu sætum. Vestfirðir fá England, Guðmundur Gíslason fer úr Agdestein yfir í Adams en Ísland mætir Skotum.
- Heimasíða mótsins
- Mótið á chess-results 50+ | 65+
- Skákir á lichess 50+ | 65+
Um mótið:
Heimsmeistaramót öldungasveita fer fram í Durres í Albaníu 19-28. apríl. Tefldar eru 9 umferðir. Ísland teflir fram þriðju stigahæstu sveitinni í flokki 65+ og fimmtu stigahæstu sveitina í flokki 50+. Sveit eingöngu skipuð Vestfirðingum í flokki 50+ er svo ellefta stigahæsta sveitin.
Sveit Íslands í 65+
GM Helgi Ólafsson – 2439
GM Margeir Pétursson – 2387
GM Jón L. Árnason – 2407
FM Þorsteinn Þorsteinsson – 2220
IM Áskell Örn Kárason – 2121
Sveit Íslands í 50+ skipa
GM Jóhann Hjartarson – 2466
GM Þröstur Þórhallsson – 2392
IM Karl Þorsteins – 2404
FM Ágúst S. Karlsson – 2224
FM Rúnar Sigurpálsson – 2236
Sveit Vestfirðinga er skipuð:
FM Guðmundur Gíslason – 2251
CM Magnús P. Örnólfsson – 2163
FM Halldór Grétar Einarsson – 2173
CM Guðmundur Halldórsson – 2105
















