Landspítalinn vann nokkuð öruggan sigur í Skákkeppni fyrirtækja og stofnana. Liðið var þétttskipað og náðu bæði í flesta vinningana og unnu allar sínar viðureignir. Þetta er annað árið í röð sem TR heldur mótið, eftir að það hafði legið í dvala í áratug. Í sigurliðinu voru Davíð Kolka, Gunnar Freyr Rúnarsson, Jón Þór Bergþórsson og Jónas Jónasson.

Mikil stemming var í Faxafeninu og margir létu sjá sig annað hvort á sínu fyrsta móti, eða á sínu fyrsta móti í langan tíma, ásamt reynsluboltum. Verðlaunin voru ekki að verri endanum fyrir efstu þrjú liðin ásamt efsta liði án lánsmanns og efsta stigalausa liðinu – 10 skipta kort á hrað- og atskákmót TR. En þess má geta að það er einmitt sumarfimmtudagsmót í kvöld!

Í öðru sæti í mótinu varð hlaðvarpið Chess After Dark með sterkasta lánsmanninn, Vigni Vatnar Stefánsson. Í þriðja sæti varð Verzlunarskóli Íslands.

CAD mættu til leiks með sterkan lánsmann!
Eiríkur K. Björnsson, Halldór Ingi Kárason, Helgi Áss Grétarsson og Gunnar Skarphéðinsson.

Strætó nældi sér í bæði aukaverðlaunin. Strætó-A var besta liðið án lánsmanns sem ekki var í 1.-3. sæti og Strætó-B besta stigalausa liðið.

Lið Strætó-B, allir stigalausir.
Áslaug Kristinsdóttir og Ívar Örn Sigurbjörnsson fyrir Strætó-A. Á myndina vantar Guðjón Þór Ólafsson.

11 lið mættu til leiks sem eru einu liði meira en í fyrra, þónokkur ný lið og nokkur lið tóku þátt tvö ár í röð.

Mótið er á chess-results með öllum einstaklingsúrslitum.

Mótsstjóri var Gauti Páll Jónsson og skákstjóri Jon Olav Fivelstad.

Mótið verður haldið að ári, miðvikudaginn 21. apríl 2027, alltaf daginn fyrir Sumardaginn fyrsta.

- Auglýsing -