FIDE-meistarinn Örn Leó Jóhannsson (2309) teflir í landsliðsflokki Skákþings Íslands sem fram fer 1.-9. maí nk. í Miðgarði í Garðabæ.  Hann tekur sæti Aleksandrs Domalchuk-Jonasson sem forfallaðist.

Alls taka tíu keppendur þátt í landsliðsflokki og þar af þrír stórmeistarar. Keppendalistinn er sem hér segir:

  1. GM Vignir Vatnar Stefánsson (2512) – landsliðsflokkur 2025
  2. GM Hannes Hlífar Stefánsson (2414) – landsliðsflokkur – 2025
  3. GM Guðmundur Kjartansson (2407) – Boðssæti
  4. IM Dagur Ragnarsson (2378)  – Boðssæti
  5. IM Björn Þorfinnsson (2355) – Boðssæti
  6. FM Örn Leó Jóhannsson (2309) – Boðssæti
  7. IM Hilmir Freyr Heimisson (2297) – Boðssæti
  8. FM Bárður Örn Birkisson (2267) – Áskorendaflokkur 2025
  9. CM Björn Hólm Birkisson (2216) – Áskorendaflokkur 2025
  10. WGM Lenka Ptácníková (2122) – Íslandsmeistari kvenna

Mótið hefst 1. maí nk. og verður nánar kynnt á næstu dögum. Veisla.

 

 

 

- Auglýsing -