Vormót Skákskóla Íslands fer fram dagana 23.-24. maí í húsnæði skólans, Faxafeni 12.
Mótið er opið öllum iðkendum Skákskólans sem tekið hafa þátt í námskeiðum og annarri starfsemi skólans á starfsárinu 2025-2026.
Tefldar verða 9 umferðir.
Tímamörk verða 15+5 og skákirnar reiknaðar til atskákstiga.
Dagskrá:
Laugardagur 23. maí
Umferðir 1-5
kl. 11:00-16:00
Sunnudagur 24. maí
Umferðir 6-9
kl. 11:00-15:00
Gert verður matarhlé á milli umferða báða dagana.

Verðlaun:
1. sæti – Ferðastyrkur að verðmæti 50.000 kr.
2. sæti – Ferðastyrkur að verðmæti 30.000 kr.
3. sæti – Ferðastyrkur að verðmæti 20.000 kr.
Veitt verða aukaverðlaun fyrir bestan árangur miðað við eigin stig og vinningafjölda í eftirtöldum flokkum:
- 1400-1600 stig
- 1601-1900 stig
- 1901+ stig
- stúlknaflokki
Aukaverðlaun í mótinu eru m.a. ferðastyrkir og námsefni af Chessable og víðar.
Ekki er hægt að vinna til fleiri en einna verðlauna.
Mótsstjórn áskilur sér rétt til breytinga á fyrirkomulagi mótsins, verði þörf á.

















