Vormót Skákskóla Íslands hefst kl. 11:00. Beinar útsendingar eru frá efstu borðunum á mótinu.

Tefldar verða 9 umferðir.
Tímamörk verða 15+5 og skákirnar reiknaðar til atskákstiga.

Dagskrá:

Laugardagur 23. maí
Umferðir 1-5
kl. 11:00-16:00

Sunnudagur 24. maí
Umferðir 6-9
kl. 11:00-15:00

Verðlaun:
1. sæti – Ferðastyrkur að verðmæti 50.000 kr.
2. sæti – Ferðastyrkur að verðmæti 30.000 kr.
3. sæti – Ferðastyrkur að verðmæti 20.000 kr.

Veitt verða aukaverðlaun fyrir bestan árangur miðað við eigin stig og vinningafjölda í eftirtöldum flokkum:

  • 1400-1600 stig
  • 1601-1900 stig
  • 1901+ stig
  • stúlknaflokki

Aukaverðlaun í mótinu eru m.a. ferðastyrkir og námsefni af Chessable og víðar.

Ekki er hægt að vinna til fleiri en einna verðlauna.

Mótsstjórn áskilur sér rétt til breytinga á fyrirkomulagi mótsins, verði þörf á.

Bein útsending

Mótið á Chess-results

 

- Auglýsing -