Íslandsmóti öldunga 65 ára og eldri er lokið á Akureyri. Leikar fóru þannig að FIDE-meistarinn Þorsteinn Þorsteinsson varð hlutskarpastur eftir baráttu við alþjóðlega meistarann Áskel Örn Kárason en þeir náðu á dögunum bronsi á HM öldungasveita í Albaníu.
Þorsteinn gerði jafntefli innbyrðis við Áskel og með svörtu gegn Haraldi Haraldssyni, aðrar skákir unnust. Áskell gerði dýrkeypt jafntefli gegn Jon Olav Fivelstad í næstsíðustu umferð sem setti strik í reikninginni og endaði Áskell hálfum vinningi á eftir Þorsteini. Sigurður Eiríksson tók þriðja sætið.

Lokastaðan eftir 9 umferðir
FM Þorsteinn Þorsteinsson – 8 vinningar
IM Áskell Örn Kárason – 7,5 vinningar
Sigurður Eiríksson – 6,5 vinningar
Haraldur Haraldsson – 5,5 vinningar
Jon Olav Fivelstad – 4,5 vinningar
Sigurlaug Regína Friðþjófsdóttir – 3,5 vinningar
Hreinn Hrafnsson – 3 vinningar
Pétur Guðbjartsson – 3 vinningar
Hilmar Ásu Hansson – 2 vinningar
Ólafur Sigurbjörn Ásgrímsson – 1,5 vinningur
Staðan á Chess Results:



















