Björn að tafli á Reykjavíkurskákmótinu 2025

Alþjóðlegi meistarinn Björn Þorfinnsson og Gauti Páll Jónsson ritstjóri tímaritsins Skák, kláruðu í dag taflmennsku á Limburg Open í Hollandi. Björn fékk þungt prógram af sterkum heimamönnum í dag en mátti þokkalega vel við una með 4,5 vinning að lokum. Gauti fékk fína innlögn í gamla góða reynslubankann.

Í fyrri umferð dagsins (þeirri sjöttu) mætti Björn stórmeistaranum og heimamanninum Thomas Beerdsen (2518). Björn fékk mikla kryppu í byrjuninni og Hollendingurinn gat nánast klárað dæmið strax.

Hér lék Beerdsen ekki 16.Rxc7+ sem ætti nánast að klára dæmið. Mögulega hefur honum yfirsést að eftir 16…Kd8 17.Rxa8 Dxg3 18.Dd2 að þá getur svartur ekki tekið á e4, 18…Bxe4 vegna 19.Da5+ og í framhaldinu getur svartur ekki forðast að biskupinn á c5 verði tekinn með skák. Þess í stað náði Björn að halda sér á floti í erfiðri stöðu.

Sá hollenski hélt áfram betra tafli en fann aldrei náðarhöggið og Björn komst út í hróksendatafl peði undir…líklega enn tapað tafl en skömminni skárra miðað við stöðuna fyrr í taflinu! Vinningurinn virtist loks renna úr greipum Hollendingsins hér…

Thomas drap á d7, 36.Hxd7? og svartur hélt nokkuð auðveldlega. 36.Kh5! er skemmtileg vinningsleið. Svartur lendir fljótt í leikþröng og verður annaðhvort að leyfa c5, Hxd7, Kxh6 eða skilja f7 peðið eftir óvaldað…eftir því hvernig svartur reynir að halda í horfið.

Gauti tapaði í sömu umferð gegn belgískum andstæðingi Katumwa (2023).

Í lokaumferðinni mætti Björn svo Liam Vroljik (2517). Þar var Björn óheppinn að andstæðingur hans hafði litið djúpt á línur sem komu upp í undirbúningi með Max Warmerdam fyrir Heimsbikarmótið í fyrra. Jafnframt sá hann sömu línu teflda í skák Björns gegn Vigni á Íslandsmótinu.

Aftur fékk Björn erfitt tafl en náði eins og í fyrri skákinni að komast í hróksendatafl peði undir. Að þessu sinni virtist baráttuþrekið þó komið að þolmörkum og Björn náði ekki að halda jafnteflinu aftur og laut í dúk að þessu sinni.

Gauti kláraði mótið með jafntefli í lokaumferðinni gegn heimamanninum Omnes (2040).

Átta skákmenn urðu efstir og jafnir með 5,5 vinning og þar hafði þýskt ungstirni, hinn 15 ára Christan Gloeckler vinninginn á oddastigum. Nafn sem vert er að fylgjast með!

Björn endaði í 19. sætið, aðeins neðar en styrkleikaröðun sem var 13. sætið. Björn hækkar þó um 3,5 elóstig á mótinu og má nokkuð vel við una miðað við „pappírsúrslit“.

Gauta gekk ekki jafn vel á pappírnum, endaði í 125. sæti en byrjaði númer 77 í styrkleikaröð. Úrslit féllu ekki alveg eins og stöðurnar gáfu tilefni til en svona er skákin stundum. Gauti tapar 37,8 elóstigum á mótinu.

Um mótið:

Limburg Open var flokkaskipt mót og tefldu þeir félagar í A-flokki. Einnig voru B-, C-, D- og öldungaflokkur auk þess sem Max Warmerdam tefldi einvígi við skákgoðsögnina Vasyl Ivanchuk.

Í A-flokki tefldu 138 skákmenn frá 29 þjóðlöndum og fimm stórmeistarar. Stigahæstur þeirra var Loek van Wely en skammt undan var önnur skákgoðsögn, sjálfur Mikhail Gurevich. Tefldar voru sjö umferðir, þar af þrír tvöfaldir dagar.

 

- Auglýsing -