Hér kemur pistill minn um Landsmótið sem mun birtast í Bændabalðinu á fimmtudag. Síðar birti ég nánari frétt en hér eru helstu niðurstöður:
8.-10. bekkur.
1.sæti Örvar Hólm Brynjarsson, Lindaskóla
2.sæti Theodór Eiríksson, Foldaskóla
3.sæti Guðrún Fanney Briem, Kóraskóla
Efsti keppandi af landsbyggð: Sigþór Árni Sigurgeirsson, Oddeyrarskóla
5.-7. bekkur
- sæti Karma Halldórsson, Grunnskólanum á Ísafirði
2.sæti Pétur Úlfar Ernisson,Langholtsskóli
3.sæti Haukur Víðis Leósson, Hlíðaskóli
Efsti keppandi af landsbyggð: Nökkvi Már Valsson, Brekkuskóli
1-4.bekkur
1.sæti Dagur Sverrisson, Vesturbæjarskóla
2.sæti Helgi Fannar Óðinsson, Norðlingaskóli
3.sæti Eiður Jökulsson, Ártúnsskóli
Efsti keppandi af landsbyggð: Brynjar Logi Sigurjónsson, Flúðaskóla
Landsmótið í Ólafsvík
Landsmótið í skólaskák fór fram í Ólafsvík í ár. Þetta er merkilegt landsmót fyrir þær sakir, að gamla kjördæmaskipanin var nánast alveg endurvakin, eftir margra ára hlé. Eftirfarandi svæði sendu keppendur til leiks í ár: Reykjavík, Kraginn, Vesturland, Vestfirðir, Norðurland vestra, Norðurland eystra, Austurland, Suðurland. Við þessu ánægjulegu tímamót þarf að bretta upp ermar og tryggja það að mótið lendi ekki aftur í þeirri lægð sem það lenti í, um tíma. Enda hefur það sýnt sig að krökkunum þykir þetta eitt skemmtilegasta skákmótið sem þau sækja.
Teflt var á laugardegi og sunnudegi í félagsheimilinu Klifi í Ólafsvík. Þar er einnig Taflfélag Snæfellsbæjar til húsa. Aðstæður til taflmennsku eru frábærar og á Sigurður Scheving frá Taflfélaginu sérstaklega þakkir skildar fyrir utanumhald. Krakkarnir tefldu í þremur aldursflokkum, 1.-4. bekk, 5.-7. bekk og 8.-10. bekk og voru tólf í hverjum flokki. Mótið var æsispennandi og þurfti að tefla úrslitakeppni í tveimur flokkum. Örvar Hólm Brynjarsson, Lindaskóla, var hins vegar öruggur sigurvegari í flokki 8.-10. bekkjar. Örvar virðist vera að leggja metnað í skákina um þessar mundir og er í greinilegri framför.
Hins vegar þurfti að tefla einvígi í flokki 1.-4. bekkjar og 5.-7. bekkjar, þar sem tveir keppendur í hvorum flokki komu jafnir í mark. Einvígi Helga Fannars Óðinssonar úr Norðlingaskóla og Dags Sverrissonar úr Vesturbæjarskóla var afar spennandi. Dagur vann það í bráðabanaskák en Helgi stóð sig afar vel, hann er í 2. bekk og á því tvö ár eftir í flokknum. Dagur er í 4. bekk, og komst inn í mótið gegnum boðssæti eftir að þrír forfölluðust, þannig að sigur hans var í gegnum mikla krókaleið, auk þess sem þetta var hans síðasti séns að næla sér í peðsbikarinn fyrir yngsta stig.
Einvígi Péturs Úlfars Ernissonar úr Langholtsskóla og Karma Halldórssonar úr Grunnskólanum á Ísafirði endaði með öruggum sigri Karma. Karma vann yngsta flokkinn á Akureyri 2024 og Pétur vann yngsta flokkinn á Ísafirði 2025 þannig að þetta voru tveir ungir menn sem eru vanir að vinna. Nú var það Karma sem fékk miðstigs-riddarann, sem fylgt hefur mótinu allt frá upphafi þess árið 1979. Áfram landsmót í skólaskák!

Það var djúp undiralda í miðtaflinu í skák Örvars og Guðrúnar í elsta flokki. Hvítur stóð betur eftir uppskipti á e3 og annar léttu manna fellur hjá svörtum. Hins vegar hefði 19. … Ha8! 20. Db7 Bc6 21. Dxe7 Bxe3 22. Hxe3 Dxc2 gefið svörtum góð færi.

Einvígi Dags og Helga Fannars.














