FIDE birti ný alþjóðleg skákstig 1. maí síðastliðinn
Stigahæstu skákmenn og konur
Vignir Vatnar Stefánsson (2534) hækkaði um 22 stig í mánuðinum og er áfram stigahæsti skákmaður landsins. Hilmir Freyr Heimisson (2310) hækkaði um 13 stig og komst aftur inn á topp 20 listann, en meira um Hilmi á næsta lista.
Lenka Ptácníková (2126) hækkaði um 4 stig og er áfram stigahæst íslenskra skákkvenna.

Ungir og gamlir
Miklar sveiflur voru hjá stigahæstu ungu skákmönnum landsins. Benedikt Briem (2239) er enn stigahæstur þrátt fyrir 23 stiga lækkun. Markús Orri Óskarsson (2159) hækkaði um 70 stig og er nú næst stigahæstur.
Eldri skákmenn tefldu lítið í mánuðinum, en á næsta lista munum við allavega sjá breytingar hjá þeim sem tefldu á heimsmeistaramótinu. Héðinn Steingrímsson (2502) er stigahæstur á vizkualdrinum.

Breytingar
Robin Peter Erlendsson Weinert (1536) hækkaði mest í mánuðinum, um 94 stig. Áðurnefndur Markús Orri hækkaði um 70 stig og Óskar Víkingur Davíðsson (2015) hækkaði um 63 stig.

Fjöldi
Vignir Vatnar Stefánsson tefldi m.a. á EM í mánuðinum og náði 22 kappskákum. Félagar hans úr Breiðabliki Birkir Hallmundarson og Guðrún Fanney Briem tefldu 17 skákir.

Nýir á lista
5 skákmenn koma nýir inn á lista. Ingi Brjánsson stigahæstur þeirra með 1800 stig.













