Framboðsfrestur til stórnar SÍ rennur út í kvöld, á miðnætti 27. maí. Framboð skal tilkynna til skrifstofu SÍ (skaksamband@skaksamband.is). Minnt er á 10. grein laga SÍ en þar segir meðal annars
Tilkynning um framboð til stjórnar SÍ skal berast skrifstofu SÍ minnst 3 dögum fyrir aðalfund. Hafi færri en 10 framboð borist innan tilskilins frests má tilkynna um framboð á aðalfundinum sjálfum.
Ársreikningur SÍ ásamt ýmsum sundurliðunum er aðgengilegur á heimasíðu SÍ. Jafnframt má þar finna fjárhagsáætlun fyrir starfsárið 2026-27. Ársreikningurinn er endanlegur en birtur óundirritaður. Verður birtur undirritaður fyrir fundinn.
Ársskýrsla SÍ fyrir starfsárið 2025-26 er í lokavinnslu og verður birt líklega í dag. Athugið að hún kemur aðeins út rafrænt í ár.
Minnt er að kjörbréfum þarf að skila inn fyrir fundinn. Þeim má skila inn rafrænt í tölvupósti til fomanns kjörbréfanefndar (helgigretarsson@gmail.com) eða á fundinum sjálfum.
- Nánar um aðalfundinn
- Ársreikningur SÍ 2025 og fjárhagsáæltun fyrir starfsárið 2026-27
- Lagabreytingatillögur
- Tillaga stjórnar SÍ um árgjöld
- Ársreikningar og árskýrslur SÍ
- Kjörbréf 2026


















