Íslandsmeistari kvenna, Lenka Ptacnikova vann sinn fyrsta sigur á Evrópumóti kvenna sem fram fer í Batumi í Georgíu í þriðju umferð sem fór fram fyrr í dag.

Lenka hafði hvítt gegn ísraelskri stelpu, aftur 15 ára andstæðingur! Lenka fékk betra eftir byrjunina og vann mann í miðtaflinu. Endataflið var smá föndur en Lenku fórst verkefnið vel úr hendi og leikþröngin í lok skákar ansi skemmtileg!

Fjórða umferð fer fram á morgun en þar mætir Lenka alþjóðlega meistaranum Gulnar Mammadova (2325) frá Azerbaijan. Teflt er á hverjum degi, enginn frídagur.

Alls taka 165 skákkonur þátt á mótinu og þeirra stigahæst er Stavroula Tsolakidou frá Grikklandi. Lenka er númer 102 í styrkleikaröðun á mótinu.

- Auglýsing -