Framboðsfrestur til stórnar SÍ rann út á síðasta miðnætti. Svo fór að sjálfkjörið er bæði í aðalstjórn og varastjórn SÍ. Jóhanna Björg Jóhannsdóttir var kjörin til tveggja ára í fyrra og situr því áfram. Eftirtaldir gefa kost á sér og skipa því stjórn og varastjórn SÍ 2026-27.
Forseti (kjörin 2025-27)
- Jóhanna Björg Jóhannsdóttir
Aðalstjórn (kjörin 2026-27)
- Auðbergur Magnússon
- Daði Ómarsson
- Harald Björnsson
- Tómas Tandri Jóhannsson
- Unnar Rafn Ingvarsson
- Þorsteinn Stefánsson
Varastjórn (kjörin 2026-27)
- Arnar Ingi Njarðarson
- Eiríkur Björnsson
- Hermann Aðalsteinsson
- Lisseth Acevado Mendez
Arnar Ingi er sá eini sem aldrei hefur setið áður í stjórn SÍ. Þorsteinn, Eiríkur og Lisseth hafa öll verið áður í stjórn SÍ áður. Eiríkur reyndar fyrir meira en áratug síðan.
Úr stjórn ganga Davíð Stefánsson, Arnar Milutin Heiðarsson, Tinna Kristín Finnbogadóttir og Harpa Ingólfsdóttir Gígja.
Ársskýrsla SÍ 2025-26 er aðgengileg. Hún verður aðeins í rafrænu formi að þessu sinni.
Minnt er að kjörbréfum þarf að skila. Þeim má skila inn rafrænt í tölvupósti til fomanns kjörbréfanefndar (helgigretarsson@gmail.com) eða á fundinum sjálfum.
- Nánar um aðalfundinn
- Ársskýrsla SÍ 2025-26
- Ársreikningur SÍ 2025 og fjárhagsáæltun fyrir starfsárið 2026-27
- Lagabreytingatillögur
- Tillaga stjórnar SÍ um árgjöld
- Ársreikningar og árskýrslur SÍ
- Kjörbréf 2026
















