Fyrir lokaumferðina í Áskorendaflokki Skákþings Íslands voru fjórir skákmenn jafnir og efstir og mættust í þokkabót innbyrðis í lokaumferðinni! Fór svo að tvíburarnir þeir Björn Hólm Birkisson og Bárður Örn Birkisson náðu í sætin mikilvægu sem gefa rétt til þátttöku í Landsliðsflokki að ári. Gauti Páll og Óskar Víkingur sátu eftir með sárt ennið í þetta skiptið.

Á efsta borði hafði Óskar Víkingur hvítt gegn Bárði Erni Birkissyni. Óskar hafði góð oddastig fyrir umferðina og líklegast hefði jafnteflið nægt honum til að enda í topp tveimur. Eftir byrjunina, sem var frönsk vörn, voru líkurnar þó farnar að færast yfir á reynsluna hjá Bárði.
Eftir ónákvæma leiki var svarta staðan auðteflanlegri og veikir reitir og peð á c-línunni reyndust hvíti um megn. Bárður er sterkur í slíkum stöðum og hafði reynsluna með sér í liði að þessu sinni.

Björn Hólm varð að fá sigur gegn Gauta vegna verri oddastiga eins og bróðir hans. Gauti beitti Benkö-bragði aftur í mótinu, mögulega eitthvað sem Björn átti ekki von á. Svartur fékk upp endatafl sem ætti að vera hægt að halda en hafnaði hrókakaupum í nokkur skipti sem hefði líklegast auðveldað vörnina.
Björn barðist og barðist fyrir rými á kóngsvæng og einhverskonar ójafnvægi en baráttan virtist vera að sigla í strand þegar skiptist upp á nánast öllu og aðeins var eftir Hrókur+Riddari+Peð hjá Birni gegn Hrók+Riddara hjá Gauta Páli. Stutt var í jafnteflið en Björn náði að láta umframpeðið telja undir mikilli pressu og í tímahraki. Vel af sér vikið!
Svekkjandi fyrir Gauta sem var nálægt því að vinna sér inn sætið en hann átti fína spretti á mótinu og vann upp verra mót í Hollandi á dögunum.
Sigurbjörn Hermannsson átti fínt mót og styrkti stöðu sína á töflunni með því að leggja Adam Omarsson sannfærandi að velli í lokaumferðinni. Svartur átti þó ansi laglega fléttu sem leyndist undir yfirborðinu.
22…Bxg3! hefði verið sterkur hér. 23.fxg3 Hxg3 24.Kf1 og nú…
24…Hg2!! og hvítur verður mát eða tapar drottningunni.
Að öðru leiti má segja að reynsla hafi haft betur á flestum borðum í umferðinni eins og sést á helstu úrslitum:

Helstu úrslit 9. umferðar
Óskar Víkingur Davíðsson – FM Bárður Örn Birkisson 0–1
CM Björn Hólm Birkisson – Gauti Páll Jónsson 1–0
FM Sigurbjörn Björnsson – Pétur Úlfar Ernisson 1–0
CM Adam Ómarsson – Sigurbjörn Hermannsson 0–1
Haukur Víðis Leósson – Josef Ómarsson 0–1
Stefán Steingrímur Bergsson – WCM Guðrún Fanney Briem 1–0

Lokastaða efstu manna
CM Björn Hólm Birkisson – 7 vinningar
FM Bárður Örn Birkisson – 7 vinningar
Gauti Páll Jónsson – 6 vinningar
Sigurbjörn Hermannsson – 6 vinningar
Óskar Víkingur Davíðsson – 6 vinningar
FM Sigurbjörn Björnsson – 6 vinningar
Josef Ómarsson – 5,5 vinningar
Stefán Steingrímur Bergsson – 5,5 vinningar
Pétur Úlfar Ernisson – 5 vinningar
Unga kynslóðin setti mark sitt á mótið eins og sjá má á helstu stigahækkunum hér að neðan!
Mestu stigahækkanir mótsins
Pétur Úlfar Ernisson – +97,6
Stefán Orri Davíðsson – +58,2
Leó Mar Jóhannsson – +48,0
Markús Orri Jóhannsson – +38,4
Þorsteinn Jakob F. Þorsteinsson – +28,0
Sigurbjörn Hermannsson – +27,2
Karma Halldórsson – +26,0
Birkir Hallmundarson – +25,6
Haukur Víðis Leósson – +24,4
Óskar Víkingur Davíðsson – +20,2

- Mótið á Chess-Results
- Beinar útsendingar (15 mínútna seinkun)

Alls tóku 34 skákmenn þátt í mótinu og voru 6 skákir sýndar beint í hverri umferð. Stighæstir keppenda voru FIDE-meistararnir Sigurbjörn Björnsson og Bárður Örn Birkisson.

















