Sjötta umferð var tefld í dag á EM öldunga á Acqui Terme á Ítalíu. Fyrir umferðina var Henrik í skiptu efsta sæti í 50+ flokknum en Jóhann hálfum vinningi á eftir. Hinir voru neðar í töflunni. Jóhann náði í skottið á efstu mönnum með sigur í sinni skák en Henrik gerðir jafntefli á efsta borði.
Flokkur (50+)
Henrik hafði 4,5 vinning fyrir umferðina, Jóhann 4 vinninga og Þröstur 3,5 vinning.
Henrik hafði hvítt gegn stigahæsta manni mótsins, Jean-Marc Degraeve, og ákvað að fara sér engu óðslega og bauð jafntefli snemma skákar sem Frakkinn þáði.
Jóhann náði fram hefndum fyrir Þröst og má eiginlega segja að hann hafi slátrað Fred Berend í þessari skák. Sikileyjarvörn Berend misheppnaðist, kóngur hans festist á miðborðinu og Jóhann sameinaði fyrirbyggjandi aðgerðir og sóknaraðgerðir af mikilli festu.
Þröstur gerði jafntefli í sinni skák. Eitthvað fór úrskeiðis snemma úr byrjuninni gegn sikileyjarvörn og Þröstur varð að taka á sig miklar veikingar á drottningarvæng eftir að menn hans þar urðu eilítið klunnalegir. Belgíski andstæðingur Þrastar bauð jafntefli sem Þröstur þáði.
Eftir umferðina hafa Jóhann og Henrik 5 vinninga og eru í skiptu efsta sæti ásamt Degraeve og Mrva. Þröstur hefur 4 vinninga.
7. umferð fer fram á morgun og þar fær Jóhann svart á Degraeve en Henrik svart á Mrva. Þröstur hefur einnig svart og mætir Van Den Bersselaar frá Belgíu.
Stórmeistararnir Jóhann Hjartarson (2467), Henrik Danielsen (2466) og Þröstur Þórhallsson (2397) taka þátt í þessum flokki. Þeir eru nr. 2-4 í stigaröð keppenda en 88 skákmenn taka þátt. Stigahæstur í flokknum er franski stórmeistarinn Jean-Marc Degrave (2494).
Flokkur (65+)

Margeir var með 3,5 af 5 fyrir umferðina og mætti Ítalanum Corrado Astengo. Margeir komst aftur á beinu brautina með sigri í þessari skák. Margeir hafði svart og náði að vinna tvö peð af Ítalanum með taktík í miðtaflinu. Restin af skákinni var meira og minna raðtækni sem Margeiri fórst vel úr hendi.
Margeir hefur 4,5 vinning og mætir í næstu umferð FIDE meistaranum Milan Kolesar frá Slóvakíu.
Margeir Pétursson (2393) tekur þátt einn Íslendinga í þessum flokki. Hann er nr. 4 í stigaröð keppenda af 125 þátttakendum. Stigahæstir eru Zurab Sturua og Ljubomir Ftacnik.

















