Fimmta umferð var tefld í dag á EM öldunga á Acqui Terme á Ítalíu. Fyrstu töpin litu dagsins ljós í dag. Í 50+ flokknum tapaði Þröstur sinni fyrstu skák, Jóhann gerði jafntefli en Henrik vann og er jafn efstu mönnum. Margeir missti niður mjög vænlega stöðu í 65+, fyrst í jafna stöðu og svo svekkjandi tap.

Flokkur (50+)

Allir höfðu 3,5 af 4 fyrir umferðina.

Jóhann mætti Cristof Sielecki, alþjóðlegum meistara sem mætti einmitt Þresti í gær. Cristof jarmaði snemma og greinilega sáttur að fá bara hljóðlátar pulsur gegn íslensku stórmeisturunum.

Henrik náði að landa sigri með þéttri og jafnri stöðutaflmennsku. Á einhverjum tímapunkti missi Henrik af flottum tölvulínum til að klára dæmið fyrr en festan var samt mikil og sigurinn eigilega aldrei í hættu gegn sterkum andstæðingi.

Þröstur tapaði sinni skák en vendipunkturinn kom í miðtaflinu gegn Fred Berend.

Hér átti Þröstur 28…Rxb2! þar sem það fellur á kjölfarið á f4 svartur vinnur lið til baka. Þess í stað hörfaði Þröstur með riddarann, 28…Rb6? og hvítur fékk illviðráðanlegan frelsingja á d-línunni sem klauf svörtu stöðuna í tvennt.

Henrik hefur 4,5 vinning og er jafn efstu mönnum. Jóhann hefur 4 vinninga og Þröstur 3,5 vinning.

6. umferð fer fram á morgun. Henrik fær hvítt gegn Jean-Marc Degreave, stigahæsta manni mótsins á meðan Jóhann heldur áfram að fá andstæðinga Þrastar, fær Fred Berend. Þröstur mætir Marcel Thirion.

Stórmeistararnir Jóhann Hjartarson (2467), Henrik Danielsen (2466) og Þröstur Þórhallsson (2397) taka þátt í þessum flokki. Þeir eru nr. 2-4 í stigaröð keppenda en 88 skákmenn taka þátt. Stigahæstur í flokknum er franski stórmeistarinn Jean-Marc Degrave (2494).

Flokkur (65+)

Margeir var með 3,5 af 4 fyrir umferðina og mætti Joan Pomes Marcet, spænskum IM. Margeir hafði hvítt og tögl og haldir mestmegnið af skákinni. Hann hafði mikla pressu á hálf-opinni línu og betri peðastöðu. Einhvern veginn komst Margeir ekki í gegn og svartur hékk á stöðunni á seiglunni. Í lokin missti svo Margeir stöðuna frá sér og niður í svekkjandi tap.

Margeir hefur 3,5 vinning og mætir Ítala Corrado Astengo í næstu umferð.

Margeir Pétursson (2393) tekur þátt einn Íslendinga í þessum flokki. Hann er nr. 4 í stigaröð keppenda af 125 þátttakendum. Stigahæstir eru Zurab Sturua og Ljubomir Ftacnik.

 

- Auglýsing -