Íslandsmeistari kvenna Lenka Ptacnikova (2106) tefldi fjóðu umferð á Teplice Open í Tékklandi í dag. Lenka mætti kandídatameistaranum Michal Hlozek (2060) frá Tékklandi og hafði svart og náði að leggja hann að velli. Lenka hefur því unnið tvær skákir í röð og komin í gang á mótinu.
Í fimmtu umferð mætir Lenka Mrozowski, Nikodem (1990) frá Póllandi.
- Auglýsing -

















