Keppni hófst í dag á HM ungmenna en mótið fer fram á Montesilvano á Ítalíu þar sem mörg mót af slíku tagi hafa verið haldin undanfarin ár. Íslensku keppendurnir eru tveir en það er annarsvegar landsliðskonan Guðrún Fanney Briem (2026) sem keppir í stúlknaflokki U16 og hinsvegar Birkir Hallmundarson (2007) sem keppir í opnum flokki U14. Bæði unnu þau stigalægri andstæðinga í fyrstu umferðinni.

Guðrún Fanney Briem er númer 28 í stigaröðinni af 106 keppendum í U16 stúlknaflokki.
Guðrún mætti stúlku frá Líbanon, Sally Hamadeh (1696) og hafði hvítt. Byrjunin misheppnaðist örlítið þar sem Guðrún víxlaði afbrigðum (tók of snemma á d5) og fékk í kjölfarið aðeins verra tafl.
Styrkleikamunurinn kom þó fljótlega í ljós, sú líbanska fann ekki gott framhald eftir að hún hafði að mestu lokið liðsskipan og leyfði sterka miðborðsframrás Guðrúnar með e-peðinu. Flækjurnar urðu svo fljótt allar hvítum í hag og Guðrún náði að klára, fín byrjun á mótinu!

Birkir er númer 68 í styrkleikaröðinni af 151 keppanda í U14 flokknum.
Birkir hafði svart gegn Kazaka, Amirsan Tueynbayev (1406). Kazakar eiga mikið af sterkum ungum skákmönnum á mótinu og til að mynda eru þrír stigahæstu skákmenn flokksins allir frá Kazakhstan og með yfir 2400 elóstig! Ekki má heldur vanmeta stigalægri Kazakana sem oft hafa fengið færri tækifæri á reiknuðum mótum og eru „underrated“ eins og margir Íslendingar hafa lent í undanfarin ár!
Segja má að átakapunkturinn í skákinni hafi komið snemma. Birkir var nýbúinn að leika 9…d5?! sem hvítur hefði getað refsað og fengið betra tafl
Hér hefði 10.exd5 exd5 11.d4! gefið hvítum betra tafl. Þess í stað lék Kazakinn 10.d4? og nú er öll taktík svörtum í hag. Birkir náði gjörsamlega að rústa hvítu peðastöðunni í kjölfarið og leyddi það til þess að andstæðingur hans taldi það besta kostinn í stöðunni að fórna skiptamun en það leiddi einfaldlega til tapaðs endatafls sem Birkir vann nokkuð auðveldlega. Líklegast teflir andstæðingur Birkis mikið á netinu því hann fann ekki „takkann“ til að gefast upp í lokin!
- Heimasíða mótsins
- Skákir á lichess: G16 | U14
- Chess-results: G16 | U14















