Fimmta umferð var tefld í dag á HM ungmenna en mótið fer fram á Montesilvano á Ítalíu. Landsliðskonan Guðrún Fanney Briem (2026) tapaði sinni skák í stúlknaflokki U16 eftir mistök snemma í byrjuninni en Birkir Hallmundarson (2007) náði í góðan sigur með svörtu í sinni skák. Þau hafa bæði 3 vinninga eftir 5 umferðir

Guðrún hafði hvítt og mætti WCM Anja Beber (2093) frá Slóveníu. Guðrún ruglaðist eilítið á línum í byrjuninni og lék 14.c5? í stað 14.Hd1 en vissi betur. Svartur fékk mjög sterkt vald á góðum reitum í herbúðum hvíts á d4 og f4 og hvíta staðan varð í kjölfarið mjög erfið strax. Guðrún sýndi fína baráttu og var á tímabili hársbreidd frá því að komast inn í skákina en sú slóvenska er greinilega sleip á svellinu og náði að klára dæmið.
Guðrún hefur 3 vinninga af 5 og mætir annarri slóvenskri stelpu, Sofia Timagina (1957) í sjöttu umferðinni.
Guðrún er númer 28 í stigaröð af 106 keppendum.

Birkir hafði svart í sinni skák gegn Mason Tay (1749) frá Ástralíu. Birkir náði fljótt betra tafli gegn máttlausri Grand-prix árás Ástralans. Birkir yfirspilaði hann í kjölfarið í betra endatafli og náði í traustan sigur.
Birkir hefur 3 vinninga af 5 og mætir Lucas Rusu (2191) frá Rúmeníu í næstu umferð!
Birkir er númer 68 í styrkleikaröðinni af 151 keppanda í U14 flokknum.
Svipmyndir úr skáksal:
Að lokinni sjöttu umferð verður frídagur á mótinu!
- Heimasíða mótsins
- Instagram síða World Youth
- Skákir á lichess: G16 | U14
- Chess-results: G16 | U14

















