Green Diamond Invitational 2026 hefst klukkan 12:00 í dag, laugardaginn 20. júní. Um er að ræða gríðarlega öflugt boðsmót þar sem ellefu sterkir skákmenn tefla fyrst einfalda umferð allir við alla og síðan hið sívinsæla „Final Four“ fyrirkomulag um sigurinn í mótinu. Mótið er í raun það sterkt að níu stórmeistarar mæta til leiks og sjálfur Íslandsmeistarinn í skák er næst-stigalægstur keppenda!
- Green Diamond Invitational 2026 (Youtube)
- ChessafterDark – Twitch
- Bein útsending á LiChess
- Bein útsending á Chess.com
- Chess-Results
Mótið hefst kl. 12:00 eins og áður segir og verður sýnt verður frá mótinu í beinni útsendingu á Vísi! Teflt verður með tímamörkunum 4 mínútur á skákina auk 2 sekúndna viðbótar á hvern leik.

Keppendur (FIDE-stig)
GM Vignir Vatnar Stefánsson – 2534
GM Jóhann Hjartarson – 2466
GM Helgi Ólafsson – 2439
GM Helgi Áss Grétarsson – 2420
GM Hannes Hlífar Stefánsson – 2419
GM Bragi Þorfinnsson – 2370
IM Björn Þorfinnsson – 2356
FM Magnús Örn Úlfarsson – 2351
IM Hilmir Freyr Heimisson – 2310
FM Örn Leó Jóhannsson – 2265
Keppendalistinn er, eins og sjá má, hlaðinn flestum af sterkustu skákmönnum þjóðarinnar.
Fyrirkomulag
Í fyrri hluta mótsins verður tefld einföld umferð allir við alla, alls 9 umferðir. Pásur eftir 3. og 6. umferð.
Að riðlakeppni lokinni komast fjórir efstu keppendurnir áfram í Final Four. Þar verða tefld undanúrslit, þar sem efsti maður riðilsins velur sér andstæðing af hinum þremur! Hvert einvígi verður þrjár skákir með sömu tímamörkum, 4+2. Sá keppandi sem endaði ofar í riðlinum fær hvítt í fyrstu tveimur skákunum.
Verði jafnt eftir þrjár skákir ræðst einvígið í Armageddon. Sigurvegarar undanúrslitanna mætast í úrslitum en taparar tefla um þriðja sætið.
Tímaplan keppenda
11:30 – Húsið opnar
12:00 – Útsending og mót hefst
12:00–12:50 – Umferðir 1–3
12:50-13:00 – Stutt 10 mín pása
13:00–14:00 – Umferðir 4–6
14:00 – 14:20 Stutt viðtal við þann sem leiðir mótið hér og svo 15 mín pása.
14:20 – 15:10 Umferðir 7-9
15:10 – 15:30 Viðtal við sigurvegara undankeppni – velur andstæðing í Final Four í útsendingunni
15:30 – 16:15 – Undanúrslit Final Four
16:15 – 16:30 – Stutt pása
16:30 – 17:00 – Úrslit og bronsleikur
17:00 – Viðtal við sigurvegara og verðlaunaafhending. Formlegri dagskrá lokið.
Áætlað er að hver umferð taki um 15 mínútur, að meðtöldum tíma fyrir uppsetningu og borðaskipti. Léttar veitingar verða í boði fyrir keppendur á mótsstað allan mótsdaginn.
Verðlaun
- sæti – 250.000 kr.
- sæti – 150.000 kr.
- sæti – 100.000 kr.
Styrktaraðilar eru auk Green Diamond Invitational: Kaldi léttöl, Lengjan, Dave&Jons
Þrír markaðir eru komnir á lengjuna:
Sigurvegari – Vignir er talinn líklegastur 1.65 en svo kemur Jóhann 4.42
Kemst í úrslit – Vignir er 1.18 hér, Jóhann um 2 og Helgi 3
kemst í undanúrslit – Vignir 1.03, Jóhann 1.2, Helgi 1.45
Birkir Karl Sigurðarson annar af forkólfum Chess After Dark, mótshöldurum hafði þetta að segja um mótið:
Hugmyndin að Green Diamond Invitational var einföld; að safna saman sterkustu skákmönnum landsins og búa til skemmtilegan viðburð sem bæði keppendur og áhorfendur geta haft gaman af.Við erum sérstaklega ánægðir með styrkleika keppendalistans í ár, enda eru sjö stórmeistarar meðal þátttakenda og sjálfur Íslandsmeistarinn stigalægstur keppenda. Það segir sitt um gæði mótsins.Við völdum einnig Final Four fyrirkomulagið þar sem það bætir spennu við keppnina og tryggir að allt geti gerst þegar kemur að úrslitunum. Markmiðið er að byggja upp árlegan skákviðburð sem skákáhugafólk, hlakkar til á hverju ári og við teljum að Green Diamond Invitational geti orðið fastur liður í íslensku skáklífi á komandi árum.Þegar Íslandsmeistarinn er næst-stigalægstur keppenda þá veit maður að mótið er sterkt. Við erum gríðarlega ánægðir með þátttökuna og teljum að samspil stuttra tímamarka, Final Four fyrirkomulagsins og öflugasta keppendahóps landsins muni gera Green Diamond Invitational að einum skemmtilegasta skák viðburði ársins.
















