Æfingamót Skákskóla Íslands fer fram dagana 5.-26. ágúst í húsnæði Skákskólans, Faxafeni 12.
Tefldar verða sjö umferðir með tímamörkunum 90+30.
Skákirnar verða reiknaðar til alþjóðlegra stiga.
Umferðir fara fram á mánudögum og miðvikudögum í ágúst.
Dagskrá:
1. umferð – miðvikudaginn 5. ágúst kl. 18:30
2. umferð – mánudaginn 10. ágúst kl. 18:30
3. umferð – miðvikudaginn 12. ágúst kl. 18:30
4. umferð – mánudaginn 17. ágúst kl. 18:30
5. umferð – miðvikudaginn 19. ágúst kl. 18:30
6. umferð – mánudaginn 24. ágúst kl. 18:30
7. umferð – miðvikudaginn 26. ágúst kl. 18:30
Mótið er opið öllum sem vilja hita upp fyrir haustið en er aðallega hugsað sem æfingamót fyrir ungmenni og annað landsliðsfólk í aðdraganda haustsins.
Yfirsetur eru í boði í öllum umferðum og gefur hver yfirseta hálfan vinning.
Keppendur eru því velkomnir í mótið jafnvel þó þeir geti ekki teflt meira en örfáar skákir.
Hægt er að merkja við yfirsetur í skráningarformi eða tilkynna um þær fyrir lok umferðarinnar á undan með því að senda póst á bjorn@skaksamband.is
Mótið verður flokkaskipt verði þátttaka nægilega góð.
Þess verður gætt að ekki verði mikill getumunur á milli keppenda í viðureignum mótsins og að landsliðsfólk mætist ekki innbyrðis heldur tefli helst við gestakeppendur.
Engin þátttökugjöld og engin verðlaun.
















