Laugardaginn 4. júlí verður haldið sérstakt afmælisskákmót í Bolungarvík í tilefni þess að Halldór Grétar Einarsson fagnar sextugsafmæli sínu.
Halldór hefur um langt árabil verið einn af máttarstólpum íslensks skáklífs og lagt mikið af mörkum til eflingar skákarinnar, bæði innan taflborðs og utan. Með þessu móti gefst skákáhugafólki tækifæri til að heiðra Halldór og fagna þessum merka áfanga með honum.
Nánar um mótið.
- Hefst kl. 11 laugardaginn 4.júlí.
- Verður hraðskákmót 4+2
- Mótsstaður: Golfskálinn í Bolungarvík
Allir skákunnendur eru hvattir til að taka daginn frá og taka þátt í þessari hátíðarstund.
- Auglýsing -















