Stórmeistarinn Hannes Hlífar Stefánsson gerði jafntefli í áttundu umferð á opna mótinu í Valencia á Spáni: VII Open Internacional València Cuna del Ajedrez. Hannes hafði svart og þurfti að hafa nokkuð fyrir jafntefli gegn pólskum alþjóðlegum meistara.
Hannes hafði svart gegn pólska alþjóðlega meistaranum Radoslaw Barski (2344). Upp kom Nimzo-indversk vörn og fórnaði Hannes peði í miðtaflinu sem lagði línurnar fyrir skákina. Sá pólski reyndi að láta peðið telja en Hannes að halda í horfið. Á endanum var varnartaflmennska Hannesar nógu góð og munaði þar mestu um skemmtilega framrás kóngs hans í endataflinu.
Hannes hefur 5 vinninga af 8 mögulegum og mætir argentíska alþjóðlega meistaranum Fabio Fiorito frá Argentínu. Sá gæti mögulega verið ósofinn enda argentíska landsliðið að spila gegn Sviss um hánótt!
Alls taka 141 skákmaður þátt á mótinu og þar af fjöldi stórmeistara. Hannes er númer 13 í stigaröð keppenda. Tefld er ein umferð á daga, níu daga mót!















