WFM Guðrún Fanney Briem (1816) situr þessa dagana að tefla í Maia í Portúgal. Hún tekur þar þátt í efsta flokki.
Guðrún Fanney braut munstrið í gær þegar hún vann í áttundu umferð með hvítu! Guðrún Fanney er með 3 vinninga að loknum átta umferðum. Níunda og síðasta umferð er nú í gangi.
Skák Guðrúnar frá í gær.
Alls taka 139 skákmenn frá 32 löndum í flokki (1800+) Guðrúnar og þar af fimm stórmeistarar. Guðrún er næststigalægst keppenda en hún er auðvitað mun betri en stigin gefa til kynna. Mótið fer fram 21.-29. ágúst. Ein umferð á dag. Gamli skólinn.
- Auglýsing -

















