Íslandsmeistarinn í skák, alþjóðlegi meistarinn, Hilmir Freyr Heimisson (2338) situr að tafli í Barcelona á Spáni dagana 21.-30. ágúst.
Hilmir tapaði í gær fyrir bandaríska stórmeistaranum Nico Chasin (2470). Hilmir náði einhvern veginn aldrei að jafna taflið með svörtu og mátti gefast upp eftir 57 leiki.
Hilmir hefur 5½ vinning og er skiptu 28. sæti. Hann mætir ástralíska alþjóðlega meistaranum Rishi Sardana (2506) í níundu og næstsíðustu umferð. Skákin verður í beinni og hefst kl. 14:30.
Hilmir í beinni útsendingu frá níundu umferð
Alls taka 359 skákmenn þátt frá 50 löndum og þar af 16 stórmeistarar. Hilmir er nr. 55 í stigaröð keppenda. Mótið fer fram 21.-30. ágúst. Tefldar eru 10 umferðir á jafnmörgum dögum. Gamli skólinn.
- Auglýsing -

















