Mynd: Heimasíða SA

Nú er sú tíð að Andri Freyr Björgvinsson vinnur flest af stærri mótum hér í höfuðstað Norðurlands. Nú var það Jólahraðskákmótið sem haldið var annan í jólum. Tólf keppendur mættu til leiks og var baráttan hörð og tvísýn um sigurinn milli Andra, Símonar Þórhallssonar, Sigurðar Arnarsonar og Stefáns Bergssonar. Aðrir komu í humátt þar á eftir. Lokastöðuna í mótinu má sjá hér.

Þess má geta að mótið var reiknað til alþjóðlegra hraðskákstiga.

Minnt er á nýjársmótið á kl. 14 á fyrsta degi komandi árs.

- Auglýsing -