Sigurbjörn var í frábæru formi á mótinu og vann með fullu hús. Mynd: Þórir Benediktsson/heimasíða TR.

Sigurbjörn Björnsson (2331) sigraði á Skákþingi Reykjavíkur með fullu húsi en mótinu lauk sl. sunnudag. Í lokaumferðinni lagði hann Gauta Pál Jónsson (2027) að velli.

Árangur Sigurbjörns er ekkert slor og samsvaraði 2899 skákstigum og hækkar hann um 26 skákstig fyrir hana.

Guðmundur Kjartansson (2453) varð annar með 7½ vinning og Vignir Vatnar Stefánsson (2323) þriðji með 7 vinninga.

Lokastaða efstu manna

Lokastaðan í heild sinni á Chess-Results. Vert er að benda á frammistöðu Benedikts Briem sem hækkar um 111 stig fyrir hana. Hann hækkaði þó ekki mest allra á mótinu því Mikael Bjarki Heiðarsson hækkaði um 116 skákstig.

Á heimasíðu TR á morgun er væntanlegur ítarlegur pistill um Skákþingið eftir Gauta Pál Jónsson.

- Auglýsing -