Skákþing Vestmannaeyja hófst 16. janúar sl. Tíu skákmenn, sem tefla allir við alla, taka þátt í mótinu sem teflt er með tímamörkunum 60+30.
Þegar sex umferðum er lokið er Sigurjón Þorkelsson (1969) efstur með 5 vinninga. Formaðurinn, Arnar Sigurmundsson (1651), er annar með 4½ vinning og þriðji er Stefán Gíslason (1722) með 4 vinninga.
- Auglýsing -
















