FIDE-meistarinn Dagur Ragnarsson (2400) vann báðar skákirnar á lokadegi alþjóðlega mótsins í Montreal í Kanada í gær. Dagur hlaut 4½ vinning í síðustu fimm umferðunum. Hann endaði með 5½ vinning og varð í þriðja sæti.
Þrátt fyrir góðan endasprettur tapar Dagur 8 stigum – enda var byrjunin arfaslök. Frammistaðan samsvaraði 2363 skákstig.
Upplýsingar um árangur Dags á mótinu má finna á Chess-Results.
- Heimasíða mótsins
- Chess-Results
- Beinar útsendingar (15 og 20:30)
- Auglýsing -
















