Það vannst góður 3-1 sigur í annarri umferð HM öldungasveita sem fram fór í gær en Ísland sendir lið í flokki 50 ára og eldri. Margeir Pétursson (2466), Þröstur Þórhallsson (2424) og Björgvin Jónsson (2324) unnu sínar skákir en Ágúst Sindri Karlsson (2268) tapaði. Góð byrjun á mótinu en íslenska liðið hefur hlotið 6½ vinning af 8 mögulegum og er í áttunda sæti af 55 liðum.
Viðureignir Íslands í gær og í dag
Þriðja umferð fer fram í og þá mætir Ísland sterkri sveit Kanada. Þá sveit skipa tveir alþjóðlegir meistarar og tveir FIDE-meistarar. Björgvin Jónsson hvílir í dag.
- Heimasíða mótsins
- Chess-Results
- Beinar útsendingar (hefjast kl. 14)
- Auglýsing -

















