Íslandsmót ungmenna 2018

    0
    2527
    Hvenær:
    13. október, 2018 @ 11:00 – 15:00
    2018-10-13T11:00:00+00:00
    2018-10-13T15:00:00+00:00
    Hvar:
    Rimaskóli
    Rósarimi
    112 Reykjavík
    Ísland
    Gjald:
    1500
    Íslandsmót ungmenna 2018 @ Rimaskóli | Reykjavík | Ísland

    Íslandsmót ungmenna fer fram laugardaginn 13. október í Rimaskóla. Mótið hefst kl. 11 Teflt er í fimm aldursflokkum. Krýndir verða 10 Íslandsmeistarar – efsti strákur og efsta stelpa í öllum flokkunum fimm.

    Afar góð verðlaun verða. Sigurvegari hvers flokks fær frí þátttökugjöld á GAMMA Reykjavíkurskákmótið 2019. Í happdrættisvinningum verða meðal annars Blutooth-hátalarar fá Heimilstækjum og úttekir í Dominos!

    Allir með!

    8 ára og yngri (f. 2010 og síðar)

    Teflt verður sér flokkum fyrir drengi og stúlkur. Tefldar verða sjö umferðir. Umhugsunartími: 7 + 3 mínútur.

    9-10 ára (f. 2008 og 2009)

    Teflt verður sér flokkum fyrir drengi og stúlkur. Tefldar verða sjö umferðir. Umhugsunartími: 7 + 3 mínútur.

    11–12 ára (f. 2006 og 2007)

    Stefnt að því að tefla í sérflokkum fyrir drengi og stúlkur. Verði þátttaka ekki næg kunna flokkarnir  að verða sameinaðir.  Mögulegt er einnig að stúlknaflokkurinn verði sameinaður öðrum stúlknaflokkum (þá eldri).

    Tefldar verða 7 umferðir með umhugsunartímanum 10 + 2.

    13–14 ára (f. 2004 og 2005)

    Teflt verður í sameinuðum flokki stúlkna og stráka. Mögulegt er einnig að stúlknaflokkurinn verði sameinaður öðrum stúlknaflokkum.

    Tefldar verða 7 umferðir með umhugsunartímanum 10 + 5.

    15–16 ára (f. 2002 og 2003)

    Teflt verður í sameinuðum flokki stúlkna og stráka. Mögulegt er einnig að stúlknaflokkurinn verði sameinaður öðrum stúlknaflokkum.

    Tefldar verða 7 umferðir með umhugsunartímanum 10 + 5.

    Skráning og greiðsla þátttökugjalda

    Skráning fyrir alla flokka fer fram á www.skak.is (guli kassinn til hægri).

    Tekið verður við þátttökugjöldum og staðfestingu á mætingu frá 10:20 – 10:50. Þeir keppendur sem mæta eftir 10:50 geta misst sæti sitt í mótinu.

    Þátttökugjald er krónur 1.500 og greiðist með reiðufé við staðfestingu á mætingu. Systkini borga aldrei meira en 2.500 kr. samtals. Hægt er jafnframt að greiða í gegnum netbanka fyrir mót inn á reikning 101-26-12763, kt. 580269-5409. Vinsamlegast látið nafn keppenda koma fram í skýringu og sendið kvittun á skaksamband@skaksamband.is.

    Upplýsingar um þegar skráða keppendur má finna hér.

    Verðlaun

    Verði tveir eða fleiri keppendur jafnir í verðlaunasætum gilda mótstig* (tie break).

    Verðlaunaafhending fer fram að keppni lokinni í hverjum flokki.

    Þrír efstu í öllum flokkum fá verðlaunabikar.

    Allir Íslandsmeistararnir fá frí þátttökugjöld á GAMMA Reykjavíkurskákmótið 2019.

    Allir keppendur verða leystir út með smá glaðningi.

    Happdrætti verður í lok hvers flokk þar sem meðal annars kunna heppnir keppenda að fá t.d. bíómiða eða pizzur.

    Mótið verður reiknað til alþjóðlegra atskák- eða hraðskákstiga eftir því sem við á.

    *Nánar um mótsstig

    Allir við alla: 1. Sonneborn-Berger, 2. Innbyrðis úrslit, 3. Fjöldi sigra

    Opnir flokkar: 1. Buchols (-1), 2. Buchols, 3. Innbyrðis úrslit, 4. Sonneborn-Berger 5. Fjöldi sigra

    - Auglýsing -