Taflélag Reykjavíkur kom sá og sigraði í 4. umferð Nethraðskákkeppni Skákklúbba sem fram fór s.l. laugardag. TR náði alls 150 stigum í umferðinni á meðan næsta lið var með 109 stig. Gríðarlegir yfirburðir TR-inga, en lið þeirra var afar vel skipað og var það Omar Salama sem dró vagnin, fékk 10 vinninga af 10 mögulegum sem þýðir 36 stig í Arena móti.
Baráttan um næstu sæti var gríðarlega hörð, en aðeins munaði 8 stigum á 2.-4. sæti. Breiðablik, Bolungarvík og Reykjanes náði 2. sætinu með 109 Arena stig, Miðbæjarskák endaði í 3. sæti með 102 stig og Skákfélag Akureyrar endaði í 4. sæti með 101 stig.
Staðan í heildarkeppninni er þannig að Taflfélag Reykjavíkur er efst með 44 GP stig, Skákfélag Akureyrar er í 2. sæti með 36 GP stig og Breiðablik, Bolungarvík og Reykjanes er í 3. sæti með 30 GP stig.
Fimmta og síðasta umferð mótsins fer fram laugardaginn 16. maí og hefst kl. 13.
Ennþá er nóg af stigum eftir í pottinum, en lokaumferðin sem fram fer á laugardaginn kl. 13 gildir tvöfalt í heildarkeppninni. Staða efstu liða getur því auðveldlega breyst!
- Úrslit 4. umferðar: https://lichess.org/tournament/4Vckw5AN
- Tengill á 5. umferð: https://lichess.org/tournament/5lddDnZ5
Staðan
REGLUR KEPPNINNAR
Nethraðskákkeppni Skákklúbba fer fram á vefsíðunni Lichess.org.
Keppnin er ekki hin formlega “Hraðskákkeppni taflfélaga”. Þessi keppni er ný og var skipulögð til þess að bjóða upp á skemmtilegar nýjungar í mótaþurrð vorsins. Sigurvegarinn hlýtur sæmdarheitið “Nethraðskákmeistari Skákklúbba”.
Tefld eru fimm mót, á laugardögum kl. 13:00 – 14:30. Fyrsta mótið fer fram laugardaginn 18. apríl og síðasta mótið fer fram 16. maí.
FYRIRKOMULAG
Keppnin er liðakeppni sem er tefld með svokölluðu “Team Battle” kerfi á vefsíðunni Lichess.org. Hægt er að tefla með tölvu, síma eða spjaldtölvu. Staðan í mótinu á hverjum tíma sést best með því að nota tölvu.
Tefld er hraðskák með tímamörkunum 3+2. Parað er eftir svokölluðu “Arena kerfi” og fá keppendur 2 stig fyrir sigur og eitt fyrir jafntefli. Fleiri stig fást fyrir að vinna margar skákir í röð. Keppendur eru ekki paraðir gegn eigin liðsmönnum, aðeins gegn öðrum félögum.
Stigagjöfin er þannig: Bónusstig fást fyrir að vinna margar skákir í röð. Jafnframt er hægt að smella á “berserk” takka áður en leik er leikið í skákinni, en þá fær keppandi aðeins 90 sekúndur á alla skákina og engan viðbótartíma. Berserk gefur aukastig fyrir skákina.
Reiknuð verða út GP stig eftir hverja umferð, en efsta liðið fær 12 stig, næstu 10, 8, 7, 6, 5, 4, 3, 2, 1. Lokakeppnin gildir tvöfalt.
Liðið sem er með flest stig eftir lokaumferðina þann 16. maí n.k. vinnur. Verði lið efst og jöfn, gilda samanlögð stig liða úr öllum umferðunum 5.
ÞÁTTTÖKURÉTTUR
Klúbbum er frjálst að stilla upp eins fjölmennu liði og þau geta, en stig 6 hæstu í hverju liði gilda sem heildarstig liðsins. Allir liðsmenn gegna jafn mikilvægu hlutverki, en kerfið leitast við að para keppendur með svipuð stig.
Keppendur þurfa að ganga í sitt lið á Lichess. Að því loknu geta keppendur skráð sig í mótið sjálft, en tengill á mótið verður á skak.is og einnig birtur á F-B síðunni “Íslenskir skákmenn” áður en umferðir hefjast.
Aðeins er heimilt að stilla fram tveimur erlendum keppendum í hverri umferð
AÐRAR REGLUR
Það er með öllu óheimilt að fá aðstoð frá öðrum keppendum eða skákreiknum. Lichess skannar allar skákir. Vakni grunur um um óheimila aðstoð þá er til staðar sjálfvirkur hugbúnaður sem útilokar keppendur.
Keppendur skulu tefla undir réttum nöfnum. Heimilt er að nota gælunafn (notendanafn) en rétt og fullt nafn skal koma fram í prófíl keppenda á Lichess. Einfalt er að stilla það með því að smella á notendanafnið uppi í hægra horninu, þar á profile og þar inni er tannhjól sem er hægt að smella á. Liðsstjórum ber að gæta að því að keppendur tefli undir fullu nafni. Tefli meira en einn skákmaður án þess að gefa upp nafn verða dregin frá 10 stig frá viðkomandi liði
Gangi ykkur vel og munið að gæta að háttvísí!

















