Bókin, sem skráð er af Helga Ólafssyni, kemur út í haust á vegum Hins íslenska bókmenntafélags í samstarfi við Skáksögufélag Íslands í tilefni 85 ára afmælis Friðriks fyrr á þessu ári. Hún fjallar um okkar fyrsta stórmeistara og litríkan æviferil hans með sérstakri áherslu á glæsileg skákafrek hans og harðskeytta baráttu á skákborðinu við goðsagnakennda snillinga á borð við Bobby Fischer, Mikhael Tal, Bent Larsen og marga fleiri af fremstu skákmeisturum heims.
Næstu 2 vikurnar gefst velunnurum Friðriks enn kostur að fá nöfn sín skráð á sérstaka heillaóskaskrá – Tabula gratulatoria – sem birt verður í ritinu, með því að skrá sig á sérstakri slóð hér á síðunni. Einnig einstökum taflfélögum og klúbbum, sem síðan mun gefast kostur á að kaupa fleiri eintök á afsláttarkjörum til verðlauna og gjafa þegar þar að kemur. Verið er að ganga frá bókinni til prentunar svo nú fara að verða síðustu forvöð til að skrá sig á listann.
Þegar bókin kemur út í september/október stofnast boðgreiðslukrafa í heimbanka fyrir andvirði hennar og kaupendur fá hana heimsenda.















