Íslenska liðið Reykjavik Puffins, sigraði finnska liðið Helsinki Vihtas af miklu öryggi í 2. umferð Nordic Chess League. Viðureignin fór fram á Þjóðhátíðardaginn 17. júní síðastliðinn. Lið Íslands skipuðu stórmeistararnir Bragi Þorfinnsson og Helgi Grétarsson, alþjóðlegi meistarinn Davíð Kjartansson og FIDE-meistarinn Dagur Ragnarsson. Hver liðsmaður tefldi 4 skákir, gegn hverjum og einum í liði andstæðinganna. Tímamörk voru 10+5. Íslensku liðsmennirnir stóðu sig allir með mikilli prýði. Bragi, Helgi og Davíð fengu allir 3 vinninga af 4 og Dagur 2 vinninga. Fyrir Finna tefldu alþjóðlegu meistararnir Toivo Keinanen og Vilka Sipila og FIDE-meistararnir Henri Pohjala og Eero Valkama.

Davíð Kjartansson tefldi af miklum krafti fyrir íslenska liðið. Í skák hans gegn FM Pohjala kom meðfylgjandi staða upp þar sem svartur lék síðast 35…cxd4 sem Davíð svaraði að bragði með 36. Dxh6+! og mát fylgir í kjölfarið.

Bragi Þorfinnsson tefldi mjög spennandi skák við mesta efni Finna um þessar mundir, IM Toivo Keinanen. Staðan kom upp eftir síðasta leik Keinanen 54…Ka4. Bragi Lék 55. a6! og eftir 55…Kxb3 56. a7 Rc7 57. h5 réð Finninn ekkert við hin fótfráu hvítu peð.
Það var svo Helgi sem tryggði sigurinn í lokaumferðinni í mikilli rússíbanaskák gegn IM Sipila. 
Finninn lék síðast 26…Be6 sem Helgi svaraði með 27. Da4+ Kd8 28. Da5+ Ke8 29. He7 mát
Lokatölur 11-5 Íslandi í vil. Ísland er langefst í keppninni að loknum 2 umferðum, með 4 matchpoint og 25 vinninga – en liðið vann stórsigur á Færeyingum í 1. umferð 14-2 eins og getið hefur verið um.
Í þriðju umferð keppninnar mætir Ísland sterku liði Malmö Vikings. Meðal liðsmanna þeirra eru stórmeistararnir Grandelius, Blomqvist og Tikkanen.
Í lokaumferð mótsins mætir íslenska liðið svo Norðmönnum en meðal liðsmanna þeirra er sjálfur Magnus Carlsen heimsmeistari.
Nánar um keppnina:
- http://malmovikings.se/nordic-league/
- https://nordicchessleague.com/
- https://www.twitch.tv/malmovikings
















