Í dag hefst mótið Skákgoðsagnir (Legends of chess) á Chess24. Magnús Carlsen er meðal keppenda en meðal annarra keppenda má finna heimsmeistaranna fyrrverandi Vishy Anand og Vladimir Kramnik.
Boris Gelfand, Vassily Ivanchuk, Peter Leko og Peter Svidler fylla svo flokk goðsagnanna. Anish Giri, Ian Nepomniachtchi og Ding Liren taka einnig þátt.
Mótið hefst með því að allir tefla við alla fjögurra skáka atskákeinvígi (15+10). Sigurvegari hvers einvígis fær 3 stig en verði jafnt verður tefldur bráðabani. Komi til bráðabana fær sigurvegarinn 2 stig en sá sem tapar fær 1 stig. Undankeppinni lýkur 29. júlí.
Fjórir efstu komast í útsláttarkeppni sem fram fer 31. júlí – 5. ágúst.
Nánar um mótið á Chess24.
- Auglýsing -















