Frá Ólympíumótinu í netskák. Mynd: GB

Ísland hóf þátttöku í Ólympíumótinu í netskák í dag. Sigur vannst gegn Síle en viðureignir gegn bæði Norðmönnum og Svþjóð töpuðust. Lenka Ptácníková og Vignir Vatnar Stefánsson fengu flesta vinninga íslensku keppendanna í dag. Ísland er í sjötta sæti tíu liða í d-riðli 2. deildar.

Ísland tapaði 1½-4½ í fyrstu umferð gegn Norðmönnum þar sem Lenka var eini Íslendingurinn sem vann. Mun betur gekk í 2. umferð þegar sannfærandi sigur vannst á Síle 4-2.  Þar unnu Lenka, Vignir og Jóhanna Björg Jóhannsdóttir sínar skákir. Viðureignin gegn Svíum var afar spennandi. Vignir vann sína skák en það dugði ekki til. Ísland tapaði 2-4.

Upplýsingar um árangur íslensku fulltrúanna má finna hér. Tyrkir, Serbar og Norðmenn eru efstir með 6 stig. Mótstöfluna má finna hér.

Á morgun fara fram 4.-6. umferð. Þá mætir Íslandi afar sterkum sveitum. Serbum, Tyrkjum og Dönum. Þá mæta meðal annars Jóhann Hjartarson og Bragi Þorfinnsson til leiks en þeir hvíldu í dag.

Björn Ívar Karlsson verður með beinar útsendingar alla helgina þar sem hann fer yfir skákirnar jafnóðum og jafnvel grípur keppendur og áhorfendur í viðtöl. Útsending dagsins hefst kl. 13:50 á morgun. Beinn tengill á útsendingarnar er hér.

Ýmsar leiðir eru til að fylgjast með skákum íslenska liðsins. Ritstjóri mælir með Followchess. Hægt er að hlaða appinu inn á síma. Tilvalið að setja appiðí símann og fylgjast með Birni Ívari í tölvunni.

Teflt er í skákhöll TR, Faxafeni 12. Áhorfendur eru velkomnir á skákstað en minnt er á reglur um sóttvarnir og tveggja metra regluna.

Flokkur Aðalmenn Varamenn
Karl 1 Jóhann Hjartarson, stórmeistari Bragi Þorfinnsson, stórmeistari
Karl 2 Guðmundur Kjartansson, alþjóðlegur meistari Helgi Áss Grétarsson, stórmeistari
Kona 1 Lenka Ptácníková, stórmeistari kvenna Jóhanna Björg Jóhannsdóttir
Kona 2 Hallgerður Helga Þorsteinsd., FIDE-meistari kvenna Lisseth Acevedo Mendez, alþjóðlegur meistari kvenna
Strákur Vignir Vatnar Stefánsson, FIDE-meistari Birkir Ísak Jóhannsson
Stúlka Batel Goitom Haile Iðunn Helgadóttir

 

- Auglýsing -