Ísland hóf þátttöku í Ólympíumótinu í netskák í dag. Sigur vannst gegn Síle en viðureignir gegn bæði Norðmönnum og Svþjóð töpuðust. Lenka Ptácníková og Vignir Vatnar Stefánsson fengu flesta vinninga íslensku keppendanna í dag. Ísland er í sjötta sæti tíu liða í d-riðli 2. deildar.
Ísland tapaði 1½-4½ í fyrstu umferð gegn Norðmönnum þar sem Lenka var eini Íslendingurinn sem vann. Mun betur gekk í 2. umferð þegar sannfærandi sigur vannst á Síle 4-2. Þar unnu Lenka, Vignir og Jóhanna Björg Jóhannsdóttir sínar skákir. Viðureignin gegn Svíum var afar spennandi. Vignir vann sína skák en það dugði ekki til. Ísland tapaði 2-4.
Upplýsingar um árangur íslensku fulltrúanna má finna hér. Tyrkir, Serbar og Norðmenn eru efstir með 6 stig. Mótstöfluna má finna hér.
Á morgun fara fram 4.-6. umferð. Þá mætir Íslandi afar sterkum sveitum. Serbum, Tyrkjum og Dönum. Þá mæta meðal annars Jóhann Hjartarson og Bragi Þorfinnsson til leiks en þeir hvíldu í dag.
Björn Ívar Karlsson verður með beinar útsendingar alla helgina þar sem hann fer yfir skákirnar jafnóðum og jafnvel grípur keppendur og áhorfendur í viðtöl. Útsending dagsins hefst kl. 13:50 á morgun. Beinn tengill á útsendingarnar er hér.
Ýmsar leiðir eru til að fylgjast með skákum íslenska liðsins. Ritstjóri mælir með Followchess. Hægt er að hlaða appinu inn á síma. Tilvalið að setja appiðí símann og fylgjast með Birni Ívari í tölvunni.
Teflt er í skákhöll TR, Faxafeni 12. Áhorfendur eru velkomnir á skákstað en minnt er á reglur um sóttvarnir og tveggja metra regluna.
| Flokkur | Aðalmenn | Varamenn |
| Karl 1 | Jóhann Hjartarson, stórmeistari | Bragi Þorfinnsson, stórmeistari |
| Karl 2 | Guðmundur Kjartansson, alþjóðlegur meistari | Helgi Áss Grétarsson, stórmeistari |
| Kona 1 | Lenka Ptácníková, stórmeistari kvenna | Jóhanna Björg Jóhannsdóttir |
| Kona 2 | Hallgerður Helga Þorsteinsd., FIDE-meistari kvenna | Lisseth Acevedo Mendez, alþjóðlegur meistari kvenna |
| Strákur | Vignir Vatnar Stefánsson, FIDE-meistari | Birkir Ísak Jóhannsson |
| Stúlka | Batel Goitom Haile | Iðunn Helgadóttir |
















