Beinar útsendingar í kvöld kl 18:00 á borð 1,2,3,4 og 8. Við reiknum með að bæta við fleiri borð á morgun.
Ritarinn missti af hörkuskák í gær milli Benedikts Þórissonar og Arnars Milutins Heiðarssonar. Það er því miður flóknara að ganga á milli og skoða skákir þegar 2 metra reglan er við lýði – varla hægt fyrr en fækkar í salnum.
19:05 – fyrsta skákin að klárast og það heyrist yfir allan salinn – „Þú varst heppinn!“. Guess who?
19:25 – Bjartur Þórisson tefldi sig í gang í gær – nú vinnur hann Sigurði J. Sigurðssyni. Sigurður tekur því með jafnaðargeði og segir „slátur“! um eigin frammistöðu.

19:30 – Aron Þór Mai og Oliver Bewerdorff sitja á fyrstu borði – allt í uppnámi – kóngur hvíts á e2 og kóngur svarts á d7 – drottningarnar horfnar yfir móðuna miklu enn samt allt óskýrt og óliðandi spennandi.
Á áttunda borði er Mikael Bjarki Heiðarsson að tefla skák lífsins við Gunnar Erik Guðmundsson. Gunnar Erik er í miklum vanda og hugsar stíft. Mennirnir Gunnars Eriks eru njörvaðir niður – hvernig á að koma sig úr klípunni ? Það er varla hægt.
Adam Omarsson og Arnar Logi Kjartansson tefla á 12. borði – Adam er með tvo hróka á móti drottningu. Kóngur Arnars er í vanda en drottning Arnars gæti gefið honum mótspil og hugsanlega er hægt að spinna mátnet. Nei, Adam verst fimlega og þetta er bara tímaspursmál hvenær svartur mun þurfa að gefast upp. Adam missir af mát í tveimur – en er með tvo hróka, biskup og riddara og til öryggis eitt frípeð á sjöttu röð á móti drottningu. Er hægt að biðja um meira?
20:00 Svakaleg barátta á sér stað á flestum borðum – Lenka Ptáčníková og Alexander Oliver Mai berjast á öðru borði – skákin virðist vera í jafnvægi. Ritarinn skilur minna í stöðunni á þriðja borði – Pétur Pálmi Harðarson er með hvítt gegn Jóhanni Hirti Ragnarssyni. Ragnar fornar biskup á e5 – og það virðist vera tveir menn í uppnámi. Ekkert sést á svip Ragnars – hann er vel falinn bak við grímuna. Enn stuttu seinna gefst hann upp – hann hefur fórnað of miklu liði.
Sigurjón Haraldsson vinnur Ingvari Wu Skarphéðinssýni á sjötta borði. Ritarinn mat stöðuna jafna um það bil fyrir 10 mínútum. Var matið svona vitlaust eða lék Ingvar af sér ?
20:30 Ólafur Gísli Jónsson á níunda borði veikir kóngstöðu Iðunnar Helgadóttur með biskupaforn á f7. Úrslitin er ráðin stuttu seinna.
Elvar Már Sigurðsson heldur áfram að tefla frábærlega. Nú leggur hann Matthías Björgvin Kjartansson í valinn og það er meira en að segja það.
Jósef Omarsson vinnur Ólaf Fannar Pétursson á fjórtánda borði eftir rúmlega 30 leiki. Það sýnir að ungu strákarnir kunna að nota tímann sinn. Það verður gaman að fylgast með þeim.
Arnar Freyr Orrason vinnur Markús Orra Jóhannsson á 16 borði. Þetta eru ungir strákar og báðir tefla mjög vel.
Á sjöunda borði er stórskemmtileg skák í gangi – Johann Helgi Hreinsson er með öflugt miðborð enn Óskar Maggason á tvö frípeð á drottningarvæng. Hvor þeirra verða á undan ?

Á fimmta borði vinnur Benedikt Þórisson tvö peð af Haraldi Baldurssyni. Haraldur á sterkt frípeð á d7. Mislitir biskupar mun gera úrvinnsluna erfiða fyrir Benedikt. Kannski er best að gefa hrók fyrir frípeðið og biskup ? Nei, Benedikt finnur betra lausn, sækir að kóngi andstæðingsins og Haraldur verður að gefast upp.
21:00 Aron Þór hefur náð að hirða öll þrjú peðin á kóngsvæng af Oliver á fyrsta borði. Oliver á a og d peð. Sennilega talsvert betra endatafl fyrir Aron. Þeir semja jafntefli eftir þrátefli. Oliver er greinilega létt enn Aron Þór er líka ánægður!
Benedikt Briem og Kristján Örn Elíasson tefla og tefla á þriðja borði – þetta verður lengsta skák kvöldsins – Benedikt hefur meira rými á drottningavæng og Kristján á kóngsvæng. Kristján leikur af sér peði. Hvað er til ráða ? – enginn kóngssókn í augsýn.
21:20 Kraftaverkin gerast enn: Jóhann Helgi hefur risið upp frá dauðanum á sjöunda borði. Hann var afskrifaður fyrir nokkrum mínútum – nú er hann sprelllífandi og gæti alveg unnið skákina.
Ritarinn ættir að hætta að reyna að skilja skák. Kristján Örn er ekki peði undir – enn Benedikt hefur náð að losa talsvert um stöðuna sína – kannski er hann með betra – kannski ekki.

21:30 Bara þrjár skákir eftir – Lenka og Alexander Oliver eru komnir langt inn í endataflið – Lenka með biskup og 6 peð og Alexander Oliver með riddara og 6 peð. Fischer mundi segja að staðan væri unnin á hvít vegna hvítreitabiskups Lenku! Alexander Oliver mun sýna að gamli Bobby hafi rangt fyrir sér.
21:50 Jafntefli samið á borð 7 – vel af sér vikið Jóhann Helgi!
22:10 Benedikt vinnur tvö peð af Kristjáni Erni. Kristján á eina veika von – kóngssókn – nú kemur í ljós hvort hann getur galdrað?
22:30 Bæði Lenka og Benedikt fipast í tímahrakinu. Lenka leikur stöðuna niður í jafntefli – jafnvél tap á tímabili – ómögulegt að reikna. Sennilega rétt stöðumat hjá Bobby Fischer.
Ekki betra hjá Benedikt – skákin snýst frá kolunnið í koltapað. Kristján Örn útnefndur Houdini umferðarinnar! Benedikt þurfi sennilega að dýfa hausinn í kalt vatn – þvílík umskipti.
















