Það var hart barist á efstu borðunum í gær. Mynd: Jon Olav Fivelstad.

Það stefnir í afar jafnan og spennandi áskorendaflokk Íslandsmótsins í skák. Að loknum þremur umferðum eru sjö keppendur jafnir og efstir með 2½ vinning. Mikið er í húfi því tvö efstu sætin gefa keppnisrétt í landsliðsflokki að ári. Þriðja sæti gæti einnig keppnisrétt ef stigahæsti keppendai mótsins, þýski FIDE-meistarinn, Oliver Bewersdorff, verður meðal tveggja efstu. Hann ætlaði að tefla á Reykjavíkurskákmótinu en þegar því var aflýst ákvað hann bara að breyta miðanum og tefla í áskorendaflokki í staðinn!

Aron Þór og Oliver. Mynd: JOV

Þau sem eru efst með 2½ vinning eru áðurnefndur Oliver, Mai-bræðurnir, Aron Þór og Alexander Oliver, Pétur Pálmi Harðarson, Benedikt Þórisson, Lenka Ptácníková, stórmeistari kvenna og Kristján Örn Elíasson.

Lenka og Alexander Oliver. Mynd: JOV

Upplýsingar um stöðu mótsins má finna á Chess-Results.

Séð yfir skáksalinn. Mynd: JOF.

Fjórða umferð fer fram í dag og hefst kl. 18. Þá mætast meðal annars Oliver-Pétur Pálmi, Kristján Örn-Lenka, Mai-bræðurnir, Alexander Oliver-Aron Þór, Benedikt-Ólafur Gísli Jónsson.  Að minnsta kosti fjögur efstu borðin verða sýnd beint.

 

- Auglýsing -