Æfingadagskrá Skákfélags Akureyrar fyrir haustmisserið 2020 liggur nú fyrir. Hún er að sjálfsögðu birt með fyrirvara um ófyrirsjáanlegar breytingar, m.a. vegna hugsanlegra sóttvarnaraðgerða. Eins og er ættu þær þó að geta farið fram með hefðbundnum hætti, nema ef svo ólíklega vilji til að viðhafa þurfi sérstaka hópaskiptingu vegna mikillar þátttöku. Þá er mælst til þess að foreldrar og aðrir fylgdarmenn snúi við í dyrunum meðan núverandi ástand varir. Æfingar verða eins og áður í Íþróttahöllinni, gengið inn að vestan (nyrðri dyrnar sem vita út að Þórunnarstræti).

Í þetta sinn er dagskráin nokkuð breytt frá því sem var í vor. Eftir sem áður verður iðkendum skipt í tvo flokka eftir aldri (með ákveðnum sveigjanleika þó). Nú bjóðast öllum tveir æfingatímar á viku, en val um einn eða tvo tíma er þó frjálst. Æfingatímar eru þessir:

  • Mánudagar kl. 17:30-19:00  Yngri börn og byrjendur (f. 2011 og síðar)
  • Þriðjudagar kl. 16:00-17:30  Framhaldsflokkur (f. 2010-2005)
  • Miðvikudagar kl. 16:00-17:30  Opinn tími fyrir báða flokka
  • Föstudagar kl. 16:00-17:30  Framhaldsflokkur (f. 2010-2005)

Æfingagjald fyrir haustmisseri verður kr. 8.000 fyrir þau börn sem æfa einn dag í viku, en kr. 14.000 fyrir þau sem ætla að nýta sér tvo daga.

Skráning á staðnum eða í netfangið askell@simnet.is.

Þau Elsa María Kristínardóttir og Hilmir Vilhjálmsson munu sjá um æfingarnar á mánudögum, en Andri Freyr Björgvinsson og Áskell Örn Kárason um hina dagana. Aðrir leiðbeinendur koma til skjalanna eftir þörfum.

Æfingar hefjast strax í næstu viku, 31. ágúst. Síðasta æfing fyrir jólafrí er áformuð 16. desember.

Af heimasíðu SA

- Auglýsing -