Hjörvar er efstur eftir sigur á Símoni. Mynd: JOV.

Áttunda og næstsíðasta umferð Haustmóts TR fór fram í gær. Hjörvar Steinn Grétarsson er efstur í a-flokki og mætir Helga Áss Grétarssyni í hreinni úrslitaskák í lokaumferðinni. Þorvarður F. Ólafsson er efstur í b-flokki og þar verður líka tefld hrein úrslitaskák. Elvar Már Sigurðsson, Jóhann Jónsson og Benedikt Þórisson eru efstir og jafnir í c-flokki.

A-flokkur

Helgi Áss vann Íslandsmeistarann í gær.

Hjörvar Steinn Grétarsson (2579) er efstur með 7½ vinning en hann vann Símon Þórhallsson (2215) í gær. Helgi Áss Grétarsson (2401) sem vann Guðmund Kjartansson (2466) er annar með 7 vinninga. Grétarssyni mætast hreinni úrslitaskák í lokaumferðinni. Helgi Áss þarf sigur en Hjörvari dugar jafntefli. Guðmundur er þriðji með 6½ vinning.

Mótstaflan eftir áttundu umferð

B-flokkur

Benedikt Briem og Alexander Oliver gerðu jafntelfi í lengstu skák gærdagsins.

Þorvarður Fannar Ólafsson (2111) vann Jóhann H. Ragnarsson (1952) en öðrum skákum lauk með jafntefli. Þorvarður er efstur með 6 vinninga og Lenka önnur með 5½. Þau mætast í hreinni úrslitaskák í lokaumferðinni þar sem Þorvarði dugar jafntefli en Lenka þarf sigur. Alexander Oliver Mai (2055) er þriðji með 5 vinninga.

Mótstaflan eftir áttundu umferð

 

C-flokkur (opinn flokkur)

Elvar Már vann Jóhann og náði honum um leið að vinningum.

Það er einnig mikil spenna í opna flokknum. Þar eru Elvar Már Sigurðsson (1712), Jóhann Jóhannsson (0) og Benedikt Þórisson (1629) jafnir og efstir.

Röð efstu manna

 

Opni flokkurinn á Chess-Results.

Nokkrar svipmyndir frá vettvangi (Jon Olav Fivelstad)

 

- Auglýsing -