Fabiano Caruana (2828) vann Pólverjann Jan-Krzysztof Duda í 2. umferð Altibox Norway Chess-mótsins í gær og er efstur með fullt hús stiga (6 stig). Levon Aronian (2767) vann Aryan Tari (2633) er í 2.-3. sæti með 4 stig. Magnús Carlsen (2863) sem var gríðarlega heppinn og seigur þegar vann ungstirnið Alireza Rirouzja (2728) í bráðabana. Carlsen hefur 3 stig en Íraninn ungi hefur 4 stig.

Þriðja umferð fer fram í dag. Þá mætast Tari–Carlsen, Duda–Aronian og Firouzja–Caruana.
Umferðir hefjast kl. 15. Vladmir Kramnik og Judith Polgar eru með skákskýringar.
Staðan

Fyrirkomulag mótsins
Í kappskákinni hafa keppendur klukkustundir á skákina og enginn viðbótartími fyrr en eftir 40 leiki en þá fá keppendur 10 sekúndur á hvern leik. Verði jafntefli verður tefldur bráðabani. Hvítur fær tíu mínútur gegn sjö mínútum svarts. Svörtum dugar jafntefli. Fyrir sigur í hefðbundinni skák eru gefin 3 stig. Fyrir sigur í bráðabana eru gefin 1,5 stig en 1 stig fyrir tap í bráðabana.
- Heimasíða mótsins
- Beinar útsendingar (hefjast kl. 15)















