Skákþing Norðlendinga 2020 fer fram á netinu (tornelo.com) sunnudaginn 13. desember kl 13:00. Öllum áhugasömum er heimil þátttaka í mótinu en aðeins keppendur með lögheimili á Norðurlandi geta unnið til verðlauna. Ókeypis verður í mótið. Stefnt að því að tefla 9 umferðir með umhugsunartímanum 8-2. á mann, en endanlegur fjöldi umferða og umhugsunartími ræðst af þátttöku. Mótið hefst kl 13:00 og má búast við að því verði lokið kl 15:00. Gunnar Björnsson verður mótsstjóri.
SKRÁNING:
SKÁKÞING NORÐLENDINGA 2020, SUNDAY, 13TH DECEMBER 2020 | TORNELO
-
Nýskrá reikning (ef þarf): https://tornelo.com/account/new
-
Kerfið dæmir ekki jafntefli ef sama staða kemur upp þrisvar, heldur þarf að gera kröfu (kalla á skákstjóra). Sama á við um 50 leikja regluna.
-
Það er ekki hægt að leika fyrirfram og ekki hægt að taka upp menn, nema þegar þú átt leik.
Eftirfarandi Oddastig (tiebreaks) gilda í mótinu: Buchholz Cut 1, Buchholz, Direct encounter, AROC, The greater number of wins including forfeits.
Lokastaðan á chess-results gildir verði menn jafnir í efstu sætum
Veitt peningaverðlaun fyrir þrjá efstu keppendur á mótinu með lögheimili á Norðurlandi auk eignarbikara.
Verðlaun skiptast þannig:
1. sæti 25 þús
2. sæti 15 þús
3. sæti 10 þús
















