Skáksamband Evrópu fetar í fótspor Skáksamband Íslands og halda sitt Evrópumót með nokkuð áþekku fyrirkomulagi og Íslandsmótið í hraðskák á Tornelo.
Mótið hefst á föstudaginn kl. 17 með undankeppni þar sem tefldar eru 11 umferðir með tímamörkunum 3+2. Efstu 16 keppendur ávinna sér rétt til að tefla í útsláttarkeppni sem fram fer á laugar- og sunnudag.
Skákmenn með 2300 eða hærri kappskákstig hafa keppnisrétt á EM Engin þátttökugjöld eru í mótið
Skráning fer fram á Tornelo. Skráningarfrestur er til kl. 19, fimmtudaginn 17. desember.
Íslenskir skákmenn sem hafa keppnisrétt eru hvattir til þess að taka þátt.
Nánar á heimasíðu ECU og og á heimasíðu mótsins.
Eftirfarandi 27 skákmenn hafa meira en 2300 virk kappskákstig. „Óvirkir skákmenn“ með meira en 2300 kappskákstig geta einnig skráð sig til leiks.
















