Rúnar að tafli á Akureyri. Mynd: Heimasíða SA.

Skákþing Norðlendinga, hið 86. í röðinni, fór fram á sunnudaginn. Mótið hefur verið haldið óslitið frá árinu 1935 en skipulagning mótsins í ár reyndist erfiðari en oft áður út af dottlu.

Brugðið var á það ráð að halda mótið á skákþjóninum Tornelo, en hann hefur reynst skipuleggjendum afar vel undanfarið þar sem reglurnar þar eru líkari borðskák en hjá öðrum og þar er auðvelt að tengja menn saman í mynd með aðstoð Zoom. Upplifunin verður því eins nálægt hefðbundnu skákmóti og mögulegt er.

Þátttakendur á Zoom. Mynd: GB.

Tuttugu og þrír keppendur mættu að þessu sinni, jafnt núverandi og fyrverandi Norðlendingar sem og gestir sem gripu tækifærið til að taka þátt í þessu sögufræga móti, sem eins og áður sagði var aðgengilegra en oft áður.

Tefldar voru 9 umferðir með tímamörkunum 8 mínútur að viðbættum 2 sekúndum á leik.

Mótið í ár var afar vel skipað og var hart barist um hvern vinning. Akureyringarnir Rúnar Sigurpálsson og Andri Freyr Björgvinsson reyndust allra manna aðsópsmestir og mátti vart á milli sjá hvor þeirra stæði upp sem sigurvegari að lokum. Báðir enduðu þeir með 7,5 vinninga en Rúnar hafði betur eftir stigaútreikning og hampar því sínum 8. Noðurlandsmeistaratitli!

Næstir á eftir þeim Rúnari og Andra voru FM Þorsteinn Þorsteinsson, CM Arnar Þorsteinsson og Tómas Veigar Sigurðarson, með 6 vinninga. Tómas var sá eini þeirra með lögheimili á Norðurlandi og var því í þriðja sæti.

Mótshaldarar þakka keppendum fyrir afar skemmtilegt mót, og færa mótsstjóranum Gunnari Björnssyni kærar þakkir fyrir aðstoðina!


Lokastaðan

Rk. SNo Name FED Rtg Pts.  TB1  TB2  TB3
1 1 FM Sigurpalsson Runar ISL 2274 7,5 38,5 50,0 0,0
2 4 Bjorgvinsson Andri Freyr ISL 2142 7,5 36,0 48,0 0,0
3 2 CM Thorsteinsson Arnar ISL 2273 6,0 39,5 51,5 0,0
4 6 FM Thosteinsson Thorsteinn ISL 2114 6,0 39,5 50,0 0,0
5 10 Sigurdarson Tomas Veigar ISL 2040 6,0 36,5 47,0 0,0
6 3 CM Halldorsson Halldor ISL 2176 5,5 39,5 51,5 0,0
7 5 IM Karason Askell O ISL 2140 5,5 35,0 44,0 0,0
8 9 Karlsson Mikael 2083 5,0 33,0 42,5 0,0
9 14 Arnljótsson Jón 1832 5,0 25,0 32,0 0,0
10 8 Bergsson Stefán 2083 4,5 38,5 49,0 0,0
11 7 Fr. Rúnarsson Gunnar 2102 4,5 32,5 41,5 0,0
12 13 Eiriksson Sigurdur ISL 1853 4,5 32,0 41,0 0,0
13 11 Sigurðsson Smári 1926 4,5 30,5 39,5 0,0
14 15 Ísleifsson Rúnar 1826 4,5 28,0 37,5 0,0
15 19 Thorarensen Aðalsteinn 1510 4,5 28,0 36,0 0,0
16 16 Ingvarsson Unnar 1785 3,5 29,0 37,0 0,0
17 18 Adalsteinsson Hermann ISL 1643 3,5 24,5 31,0 0,0
18 21 Oskarsson Markus Orri ISL 1389 3,5 23,5 31,0 0,0
19 17 Eymundsson Eymundur 1720 3,0 30,5 38,0 0,0
20 22 Ingi Smárason Kristján 1382 3,0 27,0 33,5 0,0
21 20 Olgeirsson Ármann 1457 2,5 25,0 31,5 0,0
22 23 Karlsson Sighvatur 1239 2,0 27,0 34,5 0,0
23 12 Danielsson Sigurdur ISL 1877 2,0 25,5 35,0 0,0

 


Skákmeistarar Norðlendinga frá upphafi

Mót nr.
1 1935 Sveinn Þorvaldsson
2 1936 Haukur Snorrason
3 1937 Guðbjartur Vigfússon
4 1938 Guðbjartur Vigfússon
5 1939 Sigurður Lárusson
6 1940 Jóhann Snorrason
7 1941 Sigmundur Halldórsson
8 1942 Jón Þorsteinsson
9 1943 Jón Þorsteinsson
10 1944 Jón Þorsteinsson
11 1945 Jóhann Snorrason
12 1946 Guðmundur Arnlaugsson
13 1947 Unnsteinn Stefánsson
14 1948 Júlíus Bogason
15 1949 Júlíus Bogason
16 1950 Margeir Steingrímsson
17 1951 Jóhann Snorrason
18 1952 Jón Þorsteinsson
19 1953 Jón Þorsteinsson
20 1954 Júlíus Bogason
21 1955 Margeir Steingrímsson
22 1956 Júlíus Bogason
23 1957 Ingimar Jónsson
24 1958 Halldór Jónsson
25 1959 Júlíus Bogason og Þráinn Sigurðsson
26 1960 Jónas Halldórsson
27 1961 Jón Ingimarsson
28 1962 Jónas Halldórsson
29 1963 Freysteinn Þorbergsson
30 1964 Jónas Halldórsson
31 1965 Hjálmar Theodórsson og Hjörleifur Halldórsson
32 1966 Jónas Halldórsson
33 1967 Jónas Halldórsson
34 1968 Freysteinn Þorbergsson
35 1969 Halldór Jónsson
36 1970 Hjálmar Theodórsson
37 1971 Guðmundur Búason
38 1972 Halldór Jónsson
39 1973 Freysteinn Þorbergsson
40 1974 Jón Torfason
41 1975 Frank Herlufsen
42 1976 Hreinn Hrafnsson
43 1977 Gunnar Skarphéðinsson
44 1978 Páll Leó Jónsson
45 1979 Pálmi R Pétursson
46 1980 Gylfi Þórhallsson
47 1981 Jón Torfason
48 1982 Jakob Kristinsson
49 1983 Pálmi R Pétursson
50 1984 Gylfi Þórhallsson
51 1985 Jón Garðar Viðarsson
52 1986 Gylfi Þórhallsson
53 1987 Jón Garðar Viðarsson
54 1988 Arnar Þorsteinsson
55 1989 Þór Valtýsson
56 1990 Rúnar Sigurpálsson
57 1991 Gylfi Þórhallsson
58 1992 Jón Garðar Viðarsson
59 1993 Gylfi Þórhallsson
60 1994 Rúnar Sigurpálsson
61 1995 Arnar Þorsteinsson
62 1996 Rúnar Sigurpálsson
63 1997 Rúnar Sigurpálsson
64 1998 Rúnar Sigurpálsson
65 1999 Halldór Brynjar Halldórsson
66 2000 Gylfi Þórhallsson
67 2001 Rúnar Sigurpálsson
68 2002 Gylfi Þórhallsson
69 2003 Halldór Brynjar Halldórsson
70 2004 Halldór Brynjar Halldórsson
71 2005 Þór Valtýsson
72 2006 Rúnar Sigurpálsson
73 2007 Áskell Örn Kárason
74 2008 Stefán Bergsson
75 2009 Gylfi Þórhallsson
76 2010 Áskell Örn Kárason
77 2011 Áskell Örn Kárason
78 2012 Stefán Bergsson
79 2013 Stefán Bergsson
80 2014 Jón Kristinn Þorgeirsson
81 2015 Jón Kristinn Þorgeirsson
82 2016 Sigurður Arnarson
83 2017 Haraldur Haraldsson
84 2018 Jón Kristinn Þorgeirsson
85 2019 Jón Kristinn Þorgeirsson
86 2020 Rúnar Sigurpálsson

 


 

Fjöldi titla

Gylfi Þórhallsson 8
Rúnar Sigurpálsson 8
Jón Þorsteinsson 5
Jónas Halldórsson 5
Júlíus Bogason 5
Jón Kristinn Þorgeirsson 4
Freysteinn Þorbergsson 3
Halldór Brynjar Halldórsson 3
Halldór Jónsson 3
Jóhann Snorrason 3
Jón Garðar Viðarsson 3
Stefán Bergsson 3
Áskell Örn Kárason 3
Arnar Þorsteinsson 2
Guðbjartur Vigfússon 2
Hjálmar Theodórsson 2
Jón Torfason 2
Margeir Steingrímsson 2
Pálmi R Pétursson 2
Þór Valtýsson 2
Frank Herlufsen 1
Gunnar Skarphéðinsson 1
Guðmundur Arnlaugsson 1
Guðmundur Búason 1
Haraldur Haraldsson 1
Haukur Snorrason 1
Hjörleifur Halldórsson 1
Hreinn Hrafnsson 1
Ingimar Jónsson 1
Jakob Kristinsson 1
Jón Ingimarsson 1
Páll Leó Jónsson 1
Sigmundur Halldórsson 1
Sigurður Arnarson 1
Sigurður Lárusson 1
Sveinn Þorvaldsson 1
Unnsteinn Stefánsson 1
Þráinn Sigurðsson 1
- Auglýsing -