Rússneska meistaramótinu í skák lauk í gær en það fór fram í glæsilegar aðstæður í Moskvu. Mótið var afar sterkt en flestir skákmenn Rússlands tóku þátt. Sterk landsmót hafa einkennt árið – sem þarf ekki að koma á óvart í ljósi þess að það hefur verið erfitt að ferðast utan landsteinanna.
Svo fór að Ian Nepomniachtchi (2784) vann sigur í karlaflokki. Annar varð Sergey Karjakin (2752). Hann tapaði fyrir Daniil Dubov (2702) í lokaumferðinni í magnaðri skák að hálfu Dubovs.

Ingvar Þór Jóhannesson fer yfir hana á Youtube á ensku og nefnir að hér gæti verið um að ræða skák ársins.
Mikhail Antipov (2611), annar tveggja liðsmanna SSON, þurfti að hætta eftir sex umferðir vegna Covid-smits. Þar sem hann hafði teflt meira en helming umferða voru vinningar hans taldir með. Þeir sem mættu honum í síðustu 5 umferðum fengu frían vinning og aukafrídag. Hinn liðsmaður SSON, ungstirnið, Andrey Esipenko (2686) hlaut 5 vinninga.

Í kvennaflokki urðu Polina Shuvalova (2456) og Aleksandra Goryachkina (2593) efstar og jafnar. Eftir jafntefli í tveim atskákum vann Goryachkina bráðabanaskák.

Nánar um mótið á Chess.com.
















