Skákþing Akureyrar, hið 84. í röðinni, hefst sunnudaginn 30. janúar kl. 13.00, Teflt verður í Skákheimilinu í Íþróttahöllinni við Skólastíg.
Fyrirkomulag mótsins mun að nokkru leyti mótast af fjölda þátttakenda. Fyrirhugað er að teflt verði í tveimur riðlum A- og B-riðil og verði þátttakendum raðað í riðla eftir skákstigum. Sigurvegari B-riðils á á síðasta skákþingi á þó sjálfkrafa rétt til þátttöku í A-riðli, þar sem teflt verður um sæmdarheitið „Skákmeistari Akureyrar 2021“.
Þá verður telft um tvo meistaratitla í yngri flokkum, þ.e. „Skákmeistari Akureyrar í unglingaflokki“ (börn fædd 2005-2009) og „Skákmeistari Akureyrar í barnaflokki“ (börn fædd 2010 og síðar). Um þessa titla verður teflt í B-riðli.
Í A-riðli er gert ráð fyrir átta keppendum og munu þeir tefla innbyrðis allir-við-alla, sjö umferðir. Í B-riðli verður gripið til röðunar skv. svissnesku kerfi ef fjöldi keppenda leyfir ekki að þar tefli allir-við-alla.
Umhugsunartími í A-riðli verður 90 mínútur á skákina, auk þess sem 30 sekúndur bætast við tímann fyrir hvern leik (90+30). Í B-riðli verður umhugsunartíminn 60-30.
Þátttökugjald er kr. 3.000 fyrir skuldlausa félagsmenn, kr. 4.000 fyrir aðra. Þátttaka er ókeypis fyrir þá unglinga sem greitt hafa æfingagjald.
Mótið verður reiknað til alþjóðlegra skákstiga.
Skráning er í netfangið askell@simnet.is eða á facebook síðu Skákfélags Akureyrar. Einnig er hægt að skrá sig á skákstað eigi síðar en 15 mínútum fyrir upphaf fyrstu umferðar.
Dagskrá verður sem hér segir:
- umferð sunnudaginn 30. janúar kl. 13.00
- umferð fimmtudaginn 4. febrúar kl. 18.00
- umferð sunnudaginn 7. febrúar kl. 13.00
- umferð fimmtudaginn 11. febrúar kl. 18.00
- umferð sunnudaginn 14. febrúar kl. 13.00
- umferð fimmtudaginn 18. febrúar kl. 18.00
- umferð sunnudaginn 21. febrúar kl. 13.00
Þegar fjöldi keppenda liggur fyrir getur mótsstjóri gert minniháttar breytingar á dagskrá og fyrirkomulagi til að auðvelda framkvæmd mótsins.
Þátttaka í mótinu er öllum heimil en Skákmeistari Akureyrar getur aðeins sá orðið sem er búsettur á Akureyri og/eða er fullgildur félagi í Skákfélagi Akureyrar.
Núverandi Skákmeistari Akureyrar er Andri Freyr Björgvinsson.
















