Skákþing Akureyrar, hið 84. í röðinni, hefst sunnudaginn 30. janúar kl. 13.00, Teflt verður í Skákheimilinu í Íþróttahöllinni við Skólastíg.

Fyrirkomulag mótsins mun að nokkru leyti mótast af fjölda þátttakenda.  Fyrirhugað er að teflt verði í tveimur riðlum A- og B-riðil og verði þátttakendum raðað í riðla eftir skákstigum. Sigurvegari B-riðils á á síðasta skákþingi á þó sjálfkrafa rétt til þátttöku í A-riðli, þar sem teflt verður um sæmdarheitið „Skákmeistari Akureyrar 2021“.

Þá verður telft um tvo meistaratitla í yngri flokkum, þ.e. „Skákmeistari Akureyrar í unglingaflokki“ (börn fædd 2005-2009) og „Skákmeistari Akureyrar í barnaflokki“ (börn fædd 2010 og síðar). Um þessa titla verður teflt í B-riðli.

Í A-riðli er gert ráð fyrir átta keppendum og munu þeir tefla innbyrðis allir-við-alla, sjö umferðir. Í B-riðli verður gripið til röðunar skv. svissnesku kerfi ef fjöldi keppenda leyfir ekki að þar tefli allir-við-alla.

Umhugsunartími í A-riðli verður 90 mínútur á skákina, auk þess sem 30 sekúndur bætast við tímann fyrir hvern leik (90+30).   Í B-riðli verður umhugsunartíminn 60-30.

Þátttökugjald er kr. 3.000 fyrir skuldlausa félagsmenn, kr. 4.000 fyrir aðra. Þátttaka er ókeypis fyrir þá unglinga sem greitt hafa æfingagjald.

Mótið verður reiknað til alþjóðlegra skákstiga.

Skráning er í netfangið askell@simnet.is eða á facebook síðu Skákfélags Akureyrar. Einnig er hægt að skrá sig á skákstað eigi síðar en 15 mínútum fyrir upphaf fyrstu umferðar.

Dagskrá verður sem hér segir:

  1. umferð sunnudaginn 30. janúar    kl. 13.00
  2. umferð fimmtudaginn 4. febrúar   kl. 18.00
  3. umferð sunnudaginn 7. febrúar    kl. 13.00
  4. umferð fimmtudaginn 11. febrúar  kl. 18.00
  5. umferð sunnudaginn 14. febrúar   kl. 13.00
  6. umferð fimmtudaginn 18. febrúar  kl. 18.00
  7. umferð sunnudaginn 21. febrúar   kl. 13.00

Þegar fjöldi keppenda liggur fyrir getur mótsstjóri gert minniháttar breytingar á dagskrá og fyrirkomulagi til að auðvelda framkvæmd mótsins.

Þátttaka í mótinu er öllum heimil en Skákmeistari Akureyrar getur aðeins sá orðið sem er búsettur á Akureyri og/eða er fullgildur félagi í Skákfélagi Akureyrar.

Núverandi Skákmeistari Akureyrar er Andri Freyr Björgvinsson.

Af heimasíðu SA.

- Auglýsing -