Önnur umferð Skákþings Reykjavíkur fór fram í gærkvöldi. Sem fyrr var stigamunur mikill á milli andstæðinga og úrslit urðu fremur hefðbundin. Hinir stigahærri unnu almennt hina stigalægri. Gunnar Erik Guðmundsson (1729) gerði þó jafntefli við Mikael Jóhann Karlsson (2130) í hörkuskák.
Helstu úrslit

Ellefu skákmenn eru efstir og jafnir með fullt hús vinninga.
Röð efstu manna

Þriðja umferð fer fram á föstudagskvöldið og hefst kl. 19:30. Þá minnkar stigamunurinn enn.
Helstu viðureignir þriðju umferðar
- Auglýsing -

















