Svíinn Nils Grandelius (2663) vann Frakkann Maxime Vachier-Lagrave (2784) í fimmtu umferð Tata Steel-mótins sem fram fer í Wijk aan Zee í gær. Öðrum skákum lauk með jafntefli. Enn misterkst heimsmeistaranum Magnúsi Carlsen (2862) að vinna „stigalágan“ andstæðing en í gær gerði hann jafntefli við Alexander Donchenko (2668). Magnús er í 2.-5. sæti, hálfum vinningi á eftir Nils, ásamt Pentala Harikrishna (2732), Fabiano Caruana (2823) og Anish Giri (2764),
Úrslit 5. umferðar
Mótstaflan

Sjötta umferð fer fram í dag. Carlsen mætir Jan-Krzysztof Duda (2743). Nils teflir við næststigahæsta skákmann heims Fabiano Caruana (2823).
- Auglýsing -
















