Rússneski stórmeistarinn Jan Nepomniachtchi verður áskorandi norska heimsmeistarans Magnúsar Carlsen en einvígi þeirra mun fara fram í Dúbaí í Sameinuðu arabísku furstadæmunum og hefst 26. nóvember nk. og lýkur í síðasta lagi 16. desember. Nepo hafði tryggt sér áskorunarréttinn fyrir síðustu umferð áskorendamótsins. Áskorendamótið hófst í Yekaterinburg í Rússlandi fyrir rösku ári, var frestað í miðjum klíðum vegna Covid-faraldursins og hófst aftur upp úr miðjum apríl. Það var greinilegt á taflmennsku Nepos í síðustu umferð þegar hann tefldi við Kínverjann Liren að spennufallið var mikið og hann tapaði skákinni án þess að sjá til sólar.
Á þeim tímapunkti gat Hollendingurinn Anish Giri náð honum að vinningum en þar sem fyrir lá að Nepo yrði alltaf hærri á Sonneborg-Berger-stigum var eins og allur vindur væri úr Giri og hann tapaði fyrir Alekseenko sem þá var neðstur og varð að láta sér lynda 3.-4. sætið.
Lokaniðurstaðan varð þessi: 1. Nepomniachtchi 8½ v (af 14). 2. Vachier-Lagrave 8 v. 3.-4. Giri og Caruana 7½ v. 5.-7. Grischuk og Liren Ding 7 v. 7. Alekseenko 5½ v. 8. Wang Hao 5 v.
Nepo og Magnus Carlsen eru jafnaldrar, báðir fæddir árið 1990. Þeir tefldu oft saman á barna- og unglingamótum og hafði Rússinn þá oftast betur. Þeir hafa teflt 11 skákir með venjulegum umhugsunartíma og staðan er 7:4 Nepo í vil. Talið er að hann hafi aðstoðað Norðmanninn í heimsmeistaraeinvíginu við Anand sem fram fór í Sotsjí við Svartahaf árið 2014. Nepo hefur átt fast sæti í landsliði Rússa og tefldi hér á landi fyrir Rússa á Evrópumóti landsliða í Laugardalshöll 2015. Þar var til sýnis einvígisborðið frá einvígi Fischers og Spasskís og líkur eru á því að eftirlíking þess verði smíðuð og notuð í einvíginu í Dúbaí.
Þessi þrítugi Rússi er viðkunnanlegur náungi en um hans persónulegu hagi er ekki mikið vitað; hann er gyðingur eins og margir af þekktustu skákmönnum Rússa í gegnum tíðina, hefur talsverðan áhuga á tölvuleikjum og gengur stundum í bol merktum vinsælum leik sem ber nafnið DOTA 2. Hann þakkaði sigur sinn í Yekaterinburg mikilli vinnusemi á undanförnum árum og nefndi alveg sérstaklega hvað sér hefði liðið vel í grænum stól sem hann sat í í öllum skákum seinni hluta keppninnar. Bæði hann og Magnús Carlsen eru taldir gernýta sér hugbúnað Alpha Zero við undirbúning fyrir mikilvægar keppnir.
Þó að skákin hafi, eins og aðrar keppnisgreinar, mátt þola miklar takmarkanir vegna Covid hefur greinin samt verið í mikilli sókn, beinar útsendingar frá skákviðburðum njóta vaxandi vinsælda og fréttamiðlar á borð við Reuters, Wall Street Journal, Telegraph, Guardian og Financial Times fjölluðu reglulega um áskorendamótið. Ekki verður áhuginn minni í haust þegar heimsmeistaraeinvígið fer fram og baráttan fer væntanlega fram á eftirlíkingu borðs sem notað var í heimsmeistaraeinvíginu í Reykjavík árið 1972.
Skákþættir Morgunblaðsins birtast á Skák.is viku síðar en í blaðinu sjálfu. Þessi skákþáttur birtist 29. apríl 2021.

















